Heimsendir líklega ekki 2012 Atli Steinn Guðmundsson skrifar 12. október 2009 07:38 Píramídi maja í Mexíkó.
Heimsendir verður að öllum líkindum ekki í desember 2012 þrátt fyrir spár fólks sem legið hefur í fornum dagatölum maja-indíána. Fréttastofan greindi frá því á dögunum að fullkominn óþarfi væri sennilega að kaupa jólagjafir fyrir jólin 2012 þar sem líkur væru á því að heimsendir yrði 21. desember það ár. Nú er hins vegar komið í ljós að vissara er að kaupa gjafirnar eftir allt saman. Það var hin svokallaða langa talning, fornt dagatal maja-indíana, sem gaf vísbendingu um að heimsendir yrði þennan dag, einfaldlega vegna þess að dagatalið náði ekki lengra. Maja-indíáninn Apolinaro Chile Pixtun frá Guatemala hefur nú stigið fram og leiðrétt þennan misskilning í eitt skipti fyrir öll. Pixtun segist hundleiður á því að bera þessa vitleysu til baka en spurningum um dómsdag rigni yfir hann og aðra maja-indíána. Sannleikurinn sé ósköp einfaldur, þeir sem gerðu dagatalið á 6. öld fyrir Krists burð vissu einfaldlega að á 25.800 ára fresti lentu jörðin, sólin og miðja vetrarbrautarinnar í beinni línu. Það myndi gerast þennan dag árið 2012 og því upplagt að láta dagatalinu lokið á þeim tímapunkti, segir Pixtun pirraður og frábiður sér meira rugl frá nýaldarsinnum, sjálfskipuðum Nostradamusar-spekingum og fólki sem hefur horft of mikið á History Channel-sjónvarpsstöðina.
Mest lesið Fær nýjar kröfur fimmtán mánuðum eftir andlát eiginkonunnar Innlent Fjölskyldur hafi þegar hætt við að flytja aftur til Grindavíkur Innlent „Vona að Uber fái aldrei leyfi til að starfa á Íslandi“ Innlent Tryggvi Gíslason er látinn Innlent Stefna á að opna kaffistofuna síðar í þessum mánuði Innlent Vegasjoppan sem byggði kamar fyrir Kristján tíunda Innlent Gerir Repúblikönum á þingi enn lífið leitt Erlent Íranir gerðu hefndarárásir á herstöðvar í nágrannaríkjunum Erlent „Þetta er hreinn uppspuni“ Innlent Sósíalisti fékk boðsferð til Kína Innlent Fleiri fréttir Ísland friðsælasta land heims nítjánda árið í röð Tólf látnir og níu særðir eftir skotárás í Jóhannesarborg Óeirðir í Belfast eftir hnífstungu Íranir gerðu hefndarárásir á herstöðvar í nágrannaríkjunum Gerir Repúblikönum á þingi enn lífið leitt Bandaríkjamenn ráðast á Íran Segir Írani hafa skotið niður þyrlu Bandaríkjanna Stríðið gegn holdétandi flugunni fær nýtt líf Kristersson í kröppum dansi á kosningaári Virðist bjartsýnn á að gæfan sé að snúast Úkraínumönnum í hag Armenar horfa áfram til vesturs eftir kosningar Ekkert lát á árásum Ísraelsmanna í suðurhluta Líbanon Fallið frá þróun nýrrar samevrópskrar herþotu Marius látinn laus Xi í heimsókn hjá Kim: Í keppni við Pútín um áhrif í Pyongyang Báðir segjast hættir, í bili Strunsaði úr viðtali: „Þú ert annaðhvort spillt eða heimsk“ Bretar setja ofan í við Vance vegna undirróðurs Skutu niður dróna yfir Lettlandi í fyrsta sinn Öflugur jarðskjálfti úti fyrir Filippseyjum í nótt Ísraelar og Íranir skiptast á skotum en Trump segist við stjórnvölinn Íranir skjóta á Ísrael Stór rafmagnsflugvél reynd fyrir fyrsta flug Bregðast við skammarbréfi Þorgerðar og félaga Fær fangelsisfrí til að heimsækja móður sína Lungnaígræðsla ekki lækning heldur sjúkdómaskipti Sátu að sumbli þegar eldur blossaði skyndilega upp í bifreið Fengu yfir sig holskeflu haturs eftir að þau ákváðu að binda enda á meðgönguna Pútín hafnar fundi með Selenskí og ítrekar kröfur Rússa Vill fá Ísland inn og tólf í viðbót Sjá meira