Tvískinnungur á enn erindi 7. maí 2009 06:45 bjartmar tekur við plötunni Bjartmar Guðlaugsson tekur við endurútgefnu plötunni úr höndum Höskulds Höskuldssonar hjá Senu.fréttablaðið/valli
Vinsælasta plata Bjartmars Guðlaugssonar, Í fylgd með fullorðnum, hefur verið endurútgefin í tilefni þess að hún er ein af hundrað bestu plötum Íslandssögunnar samkvæmt nýrri könnun. „Þetta eru orðin 22 ár er það ekki?,“ segir Bjartmar og hlær. „Það er mjög vel staðið að þessu hjá þeim í Senu og Höskuldur [Höskuldsson] á skilið hrós fyrir þetta. Ég er algjörlega í skýjunum með þetta.“ Í fylgd með fullorðnum kom út 12. nóvember árið 1987 og seldist í fimmtán þúsund eintökum, enda hafði hún að geyma slagara á borð við Týnda kynslóðin, Ég er ekki alki og Járnkarlinn. Flest eintökin voru framleidd á vínyl en um eitt þúsund voru gefin út á geisladiskum, sem voru þá að ryðja sér til rúms. Platan hefur verið ófáanleg í rúma tvo áratugi en loksins hefur verið ráðin bót á því. „Mitt efni er nánast allt óendurútgefið og það varð einhvers staðar að byrja. Ég býst fastlega við því að það verði farið að vinna í því að gefa út elstu plöturnar,“ segir Bjartmar. Hann vill ekkert fullyrða um að Í fylgd með fullorðnum sé meistarastykkið sitt. „Þetta er þekktasta platan en margar af mínum plötum hafa farið svolítið utangarðs og ekki fyrir það að það séu verri plötur. Með vottorð í leikfimi er til dæmis afburða vel unnin plata. Ég hef alltaf notið þess á ferlinum að vera umvafinn snillingum. Það hefur gert mig að því sem ég er.“ Í fylgd með fullorðnum er að sögn Bjartmars hluti af nokkurs konar þríleik sem fól einnig í sér plöturnar Með vottorð í leikfimi og Það er puð að vera strákur. Hann er fullviss um að hin endurútgefna plata eigi jafnmikið erindi við landsmenn í dag og hún átti fyrir rúmum tuttugu árum. „Í fylgd með fullorðnum fjallar um tvískinnung í öllum sínum myndum. Það var alveg óhjákvæmilegt að líta á veröldina með augum barnsins í tveimur til þremur lögum á plötunni,“ segir hann. „Ég er svolítið hræddur um að þessi tvískinnungur sé búinn að koma okkur í þá stöðu sem við erum í í dag.“ Alls hefur Bjartmar gefið út tólf plötur á ferlinum og vonar að sú þrettánda líti dagsins ljós fyrr en síðar. „Ég er alveg í banastuði ef ég segi alveg eins og er. Það fer að styttast í að það heyrist lag en ég veit ekki með útgáfu,“ segir hann og bætir við: „Ég held að fyrir alla sem eru að stunda listir þá verður að færa þjóðinni eitthvað núna, það verður að gera það.“ freyr@frettabladid.is
Mest lesið „Þetta var morðingi frænda míns, bara alvöru morðingi“ Lífið „Sjálfsvinna er ævistarf“ Lífið „Ég hélt að ég væri hreinlega að deyja“ Lífið „Ég ræð ferðinni“ Lífið „Þetta gekk eins og í lygasögu“ Lífið „Þessi Barbie-dúkka horfir ekki á neitt nema spegilinn“ Lífið Jökull og Telma hvort í sína áttina Lífið Sjálfskipaður Yoda okkar Íslendinga hefur rangt fyrir sér Lífið „Enginn skömm að því að leita sér hjálpar“ Lífið „Fegurð er miklu meira en bara útlit“ Lífið Fleiri fréttir „Sjálfsvinna er ævistarf“ „Þetta var morðingi frænda míns, bara alvöru morðingi“ „Þetta gekk eins og í lygasögu“ „Ég hélt að ég væri hreinlega að deyja“ „Ég ræð ferðinni“ Jökull og Telma hvort í sína áttina „Þessi Barbie-dúkka horfir ekki á neitt nema spegilinn“ „Fegurð er miklu meira en bara útlit“ Stórum hluta kærunnar vísað frá Íslandsvinurinn Gucci Mane frelsissviptur Birnir á lag ársins Myndaveisla: Hundar og kettir velkomnir síðan árið 2017 „Enginn skömm að því að leita sér hjálpar“ Logi Bergmann spyr fjölmiðlamenn spjörunum úr „Ef þú ert að fara í gegnum helvíti haltu bara áfram“ Páskar: Ef þú mættir velja einhvern til að krossfesta Hvað veistu um… Óskarsverðlaunin? Bubbi, kílómetragjaldið og svikin um boltaland fyrir fullorðna Notaði allar líflínurnar í byrjun þáttarins Hlustendaverðlaunin: Kaleo er flytjandi ársins Páskabingó Blökastsins Úr Brúðkaupsþættinum Já yfir í að þjálfa leiðtoga Bubbi með opna hljómsveitaræfingu í Höllinni „Þá spurði ég hann hvort hann vildi gamla eða nýja ísinn“ Mótefni gegn afmennskun og kúgun Var sagt að þetta væri „hluti af því að vera kona“ Hundrað skvísur blómstruðu saman Er ástin blind? Eru konur ástsjúkari en karlar? Kom gríðarlega stórum hlut í gegnum kleinuhring án þess að skemma hann Förgun bóka áþekk því að lóga gæludýrum Sjá meira