Vonar að minnisblað Ingibjargar breyti hugarfari þingmanna 19. desember 2009 21:00
Birgitta Jónsdóttir, þingmaður Hreyfingarinnar, vonast til þess að minnisblað Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur, fyrrverandi utanríkisráðherra, til utanríkismálanefndar Alþingis breyti hugarfari þingmanna og orðræðinu í Icesave málinu. Hún segir að minnisblaðið hafi komið sér á óvart. Ingibjörg Sólrún dregur upp mynd af því sem gerðist bak við tjöldin í harðri milliríkjadeilu Íslendinga við Breta og Hollendinga í minnisblaði til utanríkismálanefndar. Hún segir að í stað þess að efnahagsáætlun stjórnvalda og AGS sem undirrituð var í október í fyrra, fengi eðlilega afgreiðslu hafi ferlið verið teppt án viðvarana og hreinskiptni. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins, sagði í fréttum Stöðvar 2 í kvöld að í minnisblaðinu tæti Ingibjörg Sólrún í sig grunnstoðirnar í málflutningi ríkisstjórnarinnar í Icesave málinu. Birgitta segir ljóst að embættismenn og samninganefnd ríkisstjórnarinnar hafi ekki verið nægjanlega harðir af sér í viðræðum við hollensk og bresk stjórnvöld. Margt af því sem komi fram í minnisblaði Ingibjargar sé í svokallaðri leynimöppu um Icesave málið sem Birgitta hefur barist fyrir að verði opinberuð. Hún telur brýnt að skjölin verði gerð opinber. Birgitta vonast til þess að stjórnarliðar taki sér tíma yfir hátíðirnar til að fara betur yfir Icesave málið og þá með hliðjón af þeirri gagnrýni sem kemur fram í minnisblaði Ingibjargar. Mikilvægt sé að stjórnarliðar skoði hvort ekki sé önnur leið fær.
Mest lesið Inga kemur Ingó til varnar Innlent Íslendingurinn var nemandi í lýðháskóla Innlent Maðurinn fannst látinn í gilinu Innlent Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Innlent Óvenjulegu tímabili að ljúka Innlent Ísland kunni að kreista veski ríkra ferðamanna Innlent Inga vill ekki setja „tugi milljarða í loftslagsmál“ Innlent Konan ákærð fyrir manndráp á Edition Innlent „Var þetta einhver skets?“ Innlent Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Innlent Fleiri fréttir Yfirgefa húsið fyrir fullt og allt á fimmtudag „Við verðum að fá fólk heim aftur“ „Komið þá með allt það sem gerðist síðast“ Fyrstu íslensku GPS-heiðlóurnar komnar heim Harmleikurinn á Edition og umdeild bifreiðarstöð Óvenjulegu tímabili að ljúka Jón Pétur segir enga feðraveldisrembu í „árþúsunda náttúruvali“ Heimilt að nota rafrænt eftirlit í nálgunarbannsmálum „Það þarf að taka í handbremsuna strax“ „Var þetta einhver skets?“ Inga kemur Ingó til varnar Íbúar funda aftur um stöðu Kaffistofunnar Konan ákærð fyrir manndráp á Edition Eden Mining vill ekki sjá málið fyrir dómstólum Ísland kunni að kreista veski ríkra ferðamanna Íslendingurinn var nemandi í lýðháskóla „Mér finnst þetta ákaflega dapurleg framganga“ Sjö þúsund störf gætu verið unnin af gervigreind Vill hætta veiðum en græna ljós Bjarna gildi Hitafundur í utanríkismálanefnd og ráðherra boðar breytingar á hvalveiðilögum Inga vill ekki setja „tugi milljarða í loftslagsmál“ Beitir sér ekki sérstaklega fyrir því að spurningunni verði breytt Stjórnarþingmaður segir Hafró í bullandi pólitík Handteknu hafa komið áður við sögu hjá lögreglu Bein útsending: Kristrún svarar spurningum um þjóðaratkvæðagreiðslu Tveir handteknir í tengslum við stórfellda líkamsárás Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Krónu kastað fyrir aurinn í fjármögnun skóla Maðurinn fannst látinn í gilinu Sást til einstaklings ofan í gili við Háafoss Sjá meira