Flugbjörgunarsveitin leitar að ljótasta jólatrénu 29. desember 2009 16:15
Flugbjörgunarsveitin í Reykjavík hefur hafið leitina að ljótasta jólatré landsins. Sá er hýsir ljótasta tréð mun hljóta veglegan flugeldapakka að gjöf frá Flugbjörgunarsveitinni. „Stundum verða trén sem virtust vera svo fín út í skógi að einhverri hörmung þegar heim í stofu er komið, greinar brotnar af, trénu rústað af nýja hvolpinum, skreytingin misheppnuð eða tréð bráðkvatt með tilheyrandi barrfelli og þunglyndum greinum. Nú eða það bara voru engir peningar fyrir jólatré og því var búið til frumlegt tré úr afgöngum og góðum vilja," segir í tilkynningu frá sveitinni og bætt við að engin ástæða sé til þess að láta afspyrnu illa heppnað jólatré eyðileggja alla hátíðisdagana. Þeir sem vilja vera með þurfa að hafa eftirfarandi í huga: 1. Þú póstar mynd af jólatrénu á Facebook grúppuna. 2. Jólatréð verður að vera þitt eigið. 3. Jólatréð verður að vera það tré sem þú varst með sem jólatré á jólunum, en ekki einhver hörmung sem þú hentir upp bara fyrir keppnina. 4. Jólatréð þarf ekki að vera úr tré. 5. Síðan getur fólk kosið. Hver og einn fær aðeins eitt atkvæði til að kjósa. 6. Þú kýst með því að skrifa "ojjj" í komment undir myndinni af því tré sem þér finnst ljótast. 7. Skilafrestur til að senda inn mynd af trénu þínu er til kl. 12 á hádegi 30. desember. 8. Síðasti möguleikinn til þess að kjósa er kl. 12 á hádegi 31. desember. 9. Eigandi þess trés sem verður með flest atkvæði 31. desember kl. 12 á hádegi hlýtur í sárabætur Trölla, stærsta flugeldapakka björgunarsveitanna að andvirði 21.900 og kappatertuna Hallgerði Langbrók að andvirði 8.900! „Megi stærsta tréð vinna!," segir að lokum.
Mest lesið „Þetta mál er náttúrulega bara einn harmleikur“ Innlent Konan sem fannst meðvitundarlaus í tjaldi látin Innlent Stutt í að beint flug til Kína fari í sölu Innlent „Ef þú ætlar austur verður þú að fara norðurleiðina“ Innlent Vonar að verslanir hafi lært af reynslunni Innlent Hvað er best að gera þegar maður er bitinn? Innlent Rannsaka kynferðisbrot og líkamsárás á Landsmóti Innlent Var illa sofin og endaði á bíl úr gagnstæðri átt Innlent Ríkissaksóknari telur að Margrét eigi ekki að fá að áfrýja til Landsréttar Innlent Erfitt að stöðva umfangsmikla sölu Innlent Fleiri fréttir Heilbrigðiseftirlitið ekki áður séð mengun í fjörunni við vinnslustöð Hvals Unnið að hrunvörnum við Holtsnúp Hluti af þriðja vinningi lenti á Íslandi Stutt í að beint flug til Kína fari í sölu Ríkissaksóknari telur að Margrét eigi ekki að fá að áfrýja til Landsréttar Gagnrýna könnun sem sýni fram á stuðning við dánaraðstoð Breiðholtsbrú opin fyrir umferð Vonar að verslanir hafi lært af reynslunni Rannsaka kynferðisbrot og líkamsárás á Landsmóti Gefur engin fyrirheit um lækkun áfengisgjalda Kynferðisbrot á Hólum og gular viðvaranir Konan sem fannst meðvitundarlaus í tjaldi látin „Ef þú ætlar austur verður þú að fara norðurleiðina“ „Þetta mál er náttúrulega bara einn harmleikur“ Þrír handteknir fyrir brot á lögreglusamþykkt Erfitt að stöðva umfangsmikla sölu Var illa sofin og endaði á bíl úr gagnstæðri átt Hvað er best að gera þegar maður er bitinn? Bandero yfirgefur Íslandsmið vegna veikinda Hryðjuverkamálið, Landsmót hestamanna og neytendur „hafðir að fíflum“ með Lite-bjórum „Vinalegt“ spjall í bílakjallara sem varð að manndrápstilraun „Svimandi“ bótakröfur á leiðinni frá Sindra Snæ og Ísidóri Strandamenn klárir í almyrkvann Hryðjuverkamálinu lokið fjórum árum eftir handtöku „Sannarlega áhugaverð gjöf“ Þyngja þurfi dóma þeirra sem láta sér ekki segjast „Hver þarf Tenerife þegar þú hefur Hérað?“ Segir undanþágur rekast á grunnforsendur ESB „Erfitt að vera svona lengi úti á sjó“ Flýtir afgreiðslu um allt að mánuð Sjá meira