Ríkisstjórnin fundar með aðilum vinnumarkaðarins í dag Höskuldur Kári Schram skrifar 13. júní 2009 11:58 Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra.
Ríkisstjórnin fundar með aðilum vinnumarkaðarins í dag vegna stöðugleikasáttmálans og um væntanlegar niðurskurðaraðgerðir til að ná niður halla ríkissjóðs. Forsætisráðherra vonast eftir breiðri sátt um aðgerðir en segir að enginn verði þó ánægður. Fundur ríkisstjórnarinnar og aðila vinnumarkaðarins hefst í ráðherrabústaðnum klukkan eitt. Fyrir liggur að ríkisstjórnin þarf að skera niður um 20 til 25 milljarða króna á þessu ári og um 170 milljarða á næstu þremur árum. Forystumenn ríkistsjórnarinnar hafa boðað blandaðar leiðir til að ná niður hallanum, skattahækkanir og niðurskurð. Fjármálaráðherra kynnti í gær frumvarp um lækkun launa stjórnenda stofnana og félaga í eigu ríkisins og einnig tillögu um frestun kröfulýsinga ríkisins til þjóðlendna. Áætlað er að það muni spara ríkinu nokkur hundruð milljónir króna á ári. „Það verður samdráttur í rekstri það verða breytingar á tilfærslum og það verða niðurskurður í framkvæmdum,"sagði Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra á blaðamannfundi ríkisstjórnarinnar í gær. Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ, sagði í samtali við fréttastofu í morgun að enn væri beðið eftir heildar áformum ríkisstjórnarinna um niðurskurðaraðgerðir. Forsætisráðherra vonast þó eftir breiðri sátt um þær leiðir sem verða farnar. „Það er ástæða til þess að ætla að það geti orðið breið sátt um það að ná hér fram stöðugleikasáttmála sem að allir geta bærilega staðið að. Það verður enginn ánægður en með því að taka alla að borðinu eins og við gerum þá vonum við að við getum náð þessu saman í sæmilegri sátt," sagði Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra.
Mest lesið Möguleiki á stórum flóðbylgjum úr íslenskum jökullónum Innlent Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Innlent Hafði afskipti af ellefu ára stúlku í miðbænum eftir miðnætti Innlent Skálmöld brá í óleyfi fyrir í „vandræðalegu þjóðrembumyndbandi“ Innlent Sökuðu rektor um meiðyrði og stjórnarskrárbrot og hótuðu skaðabótamáli Innlent Segir Katrínu sparka í konuna sína Innlent Óttast aukið álag eftir fjöldauppsagnir hjá Reykjavíkurborg Innlent Forystukonum ríkisstjórnarinnar brugðið vegna alvarlegra hótana Innlent Þorgerður beygði af í Bítinu Innlent Telur að barátta Ólafs muni koma í bakið á honum Innlent Fleiri fréttir Kjörsókn meiri en á sama tíma í síðustu þingkosningum „Þetta gæti ekki verið meira spennandi“ Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Allt bendi til lítils jökulshlaups Bjart og þurrt þegar þjóðin gengur að kjörborðinu Hafði afskipti af ellefu ára stúlku í miðbænum eftir miðnætti Möguleiki á stórum flóðbylgjum úr íslenskum jökullónum Óttast aukið álag eftir fjöldauppsagnir hjá Reykjavíkurborg Sökuðu rektor um meiðyrði og stjórnarskrárbrot og hótuðu skaðabótamáli Hnífjafnt í síðustu könnuninni Umræðan hafi verið ruglingsleg og á lágu plani Skálmöld brá í óleyfi fyrir í „vandræðalegu þjóðrembumyndbandi“ Símtöl almennt málefnaleg en dónaskapur inni á milli Aldrei komið í þvílíkt fjölmenni þar sem er svona mikil þögn Jákvæð „sjálfsmyndarkrísa“ í Brussel Forystukonum ríkisstjórnarinnar brugðið vegna alvarlegra hótana Líflátshótanir, þandar taugar og bein útsending frá norsku konungshöllinni Voru á Íslandi þegar maðurinn var drepinn Missti öxi sem hann hafði inni á sér og var handtekinn Uppsagnirnar hafi komið eins og reiðarslag Telur að barátta Ólafs muni koma í bakið á honum Brynjar tekur við af Líf Jón Hrói nýr sveitarstjóri í Langanesbyggð Efast um að skylt verði að hefja aðildarviðræður þótt já verði ofan á Armslengd eigi sérstaklega vel við um Fjölmiðlanefnd Inga segir já Örfáir töldu Ingu hafa staðið sig best Tuttugu prósent búin að greiða atkvæði „Mér fannst ég þekkja hann strax og ég hitti hann í fyrsta sinn“ Bíða enn niðurstöðu varðandi vatnslögnina Sjá meira