Íslendingar neyddir til einhliða ákvörðunar um makrílveiðar 28. október 2009 11:10
Íslensk stjórnvöld eru neydd til að taka einhliða ákvöðrun um makrílveiðar sínar á næsta ári. Íslendingar fá ekki að koma að samningum um þessar veiðar þar sem ESB, Noregur og Færeyjar vilja ekki viðurkenna stöðu Íslands sem strandríkis. Í tilkynningu frá sjávarútvegsráðuneytinu segir að íslensk stjórnvöld hafi árum saman, án árangurs, leitað eftir því að taka þátt í heildarstjórnun makrílveiða ásamt Evrópusambandinu, Noregi og Færeyjum, þ.e. ákvörðun um leyfilegan heildarafla og skiptingu hans. Hinir aðilarnir þrír hafa hafnað að viðurkenna stöðu Íslands sem strandríkis að því er makríl varðar og gefið upp sem ástæðu að lítinn sem engan makríl sé að finna í íslenskri lögsögu. Af þessum sökum hafa íslensk stjórnvöld þurft að taka einhliða ákvörðun um árlegan afla Íslands. Þrátt fyrir stóraukna makrílgengd í íslensku lögsöguna og að íslensk skip hafi veitt 112 þúsund tonn af makríl í fyrra og svipað magn í ár, hefur það engu breytt um afstöðu Evrópusambandsins, Noregs og Færeyja. Þau þverskallast við að viðurkenna Ísland sem strandríki, halda nú vikulangan fund um stjórn makrílveiða fyrir árið 2010 í Cork á Írlandi og hafa aðeins boðið Íslandi að sitja lokadag fundarins. Með þessu er augljóst að aðilarnir þrír hafna þeirri ósk Íslands að taka þátt í heildarstjórnun makrílveiðanna á næsta ári, sem við eigum fullan rétt á samkvæmt hafréttarsamningnum og úthafsveiðisamningnum. Með þessum aðgerðum eru íslensk stjórnvöld knúin til að taka enn á ný einhliða ákvörðun um aflahámark fyrir næsta ár. Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, Jón Bjarnason, tiltekur að þá verði augljóslega litið til veiðanna undanfarin ár og jafnframt til vaxandi útbreiðslu makríls innan íslensku efnahagslögsögunnar.
Mest lesið Fór af hjólinu skömmu áður en það brann til kaldra kola á þjóðveginum Innlent „Þetta snýst ekki hreinlega um bann heldur ákveðna vernd“ Innlent Hefur áhyggjur af smithættu í fargufum Innlent Nánast farin að reikna með hitabylgjum fyrir austan Innlent Um 7.000 manns taldir smitaðir af svæsinni niðurgangspest Erlent Adolf Ingi fékk svar frá Stefáni: „Aumt að skýla sér á bak við Fjölmiðlanefnd“ Innlent Sögðu mjólkurfernu kosta 380 krónur en eyddu myndskeiðinu Innlent Leigubílstjóri stunginn af farþega Innlent Ólafur hjá Morgunblaðinu kærður til siðanefndar BÍ Innlent Slökkviliðsstjóri lætur af störfum eftir ábendingar Innlent Fleiri fréttir „Þetta snýst ekki hreinlega um bann heldur ákveðna vernd“ Fór af hjólinu skömmu áður en það brann til kaldra kola á þjóðveginum Nánast farin að reikna með hitabylgjum fyrir austan Ekki öll jafn spennt fyrir boðuðu samfélagsmiðlabanni Hefur áhyggjur af smithættu í fargufum „Þetta setti allt úr skorðum fyrir okkur“ Lögreglan rannsakar enn eitt innbrotið í borginni Varað við hvössum vindstrengjum við fjöll og á heiðum Adolf Ingi fékk svar frá Stefáni: „Aumt að skýla sér á bak við Fjölmiðlanefnd“ Kvöldfréttir Sýnar í heild sinni Tengivagn valt á Vesturlandsvegi Vilja reisa 140 stúdentaíbúðir á Kársnesi Leigubílstjóri stunginn af farþega Ólafur hjá Morgunblaðinu kærður til siðanefndar BÍ Skora á borgaryfirvöld að taka innbrotafaraldurinn föstum tökum Heilbrigðisnefndir verða lagðar niður Sögðu mjólkurfernu kosta 380 krónur en eyddu myndskeiðinu Veita helmingsafslátt af leigunni Íbúafjöldinn fimmfaldast í blíðunni Boðar frekari breytingar „Þó staðan sé ekki góð, þá hefur hún fram að þessu verið ennþá verri“ Fósturbarnakerfið harðlega gagnrýnt og verulega dregið úr umsóknum um alþjóðlega vernd Hafi sýnt stjúpdóttur sinni klám til að réttlæta brot sín Sparkaði í ellefu ára dreng í kjölfar dyraats Fara fram á gæsluvarðhald eftir „stórfellda líkamsárás“ Herjólfur úr leik í fjóra daga þegar nýi mótorinn kemur Ætla að banna samfélagsmiðla fyrir undir fimmtán ára Einn kærður fyrir líkamsárás Rúmlega þriðjungur barna í fóstri á heimilum án leyfis Hundur sem átti að aflífa fluttur úr landi Sjá meira