Rannsaka ofbeldisbrot og fjárkúganir 3. desember 2009 04:00 framlenging Fimm Litháar voru úrskurðaðir í áframhaldandi gæsluvarðhald til 30. desember í Héraðsdómi Reykjaness í gær. Sá hluti málsins er snýr að mansalsþætti þess hefur verið sendur til Ríkissaksóknara.
Lögreglan á Suðurnesjum rannsakar enn nokkur hliðarmál við mansalsmálið svonefnda. Þar má nefna innbrot, handrukkanir, innheimtu „verndartolla“ og ofbeldisbrot, sem fimm litháískir menn eru grunaðir um aðild að. Mennirnir fimm voru í gær úrskurðaðir í áframhaldandi gæsluvarðhald til 30. desember. Þeir eru ekki lengur í einangrun en sæta nú svokallaðri lausagæslu á Litla-Hrauni. Lögreglan hefur lokið rannsókn á mansalsþætti málsins og sent það til Ríkissaksóknara. Upphaf þessarar umfangsmiklu rannsóknar má rekja til þess er nítján ára litháísk stúlka kom hingað til lands með flugi frá Varsjá í Póllandi í október. Grunur vaknaði um að hún hefði verið flutt til landsins sem fórnarlamb mansals og hófust handtökur í framhaldi af því. Þrír Íslendingar sættu gæsluvarðhaldi um tíma vegna lögreglurannsóknarinnar. Sá þeirra sem lengst sat inni var grunaður um aðild að mansalsþættinum og sat í gæsluvarðhaldi á grundvelli þess. Meðal annars höfðu þrír Litháanna unnið hjá fyrirtæki sem hann rekur. Rannsóknargögn lögreglu varðandi meinta aðild hans að mansalsmálinu hafa einnig verið send til Ríkissaksóknara, sem tekur ákvörðun um hverjir verða ákærðir og hverjir ekki. Umræddur einstaklingur var einnig grunaður um að hafa óhreint mjöl í pokahorninu varðandi bruna í ágúst síðastliðnum á húsnæði sem hann átti í Grundarfirði. Forræði þess máls er nú komið til Lögreglustjórans í Stykkishólmi. Mennirnir fimm sem enn sitja í gæsluvarðhaldi eru þekktir að ofbeldisverkum hér á landi. Sumir þeirra tengjast árás á óeinkennisklæddan lögreglumann sem var við fíkniefnaeftirlit á Laugavegi í janúar 2008. Þá veittist hópur manna að honum með höggum og spörkum. Hann fékk heilahristing og sár víðs vegar á líkamanum. Þá tengjast sumir þeirra sem inni sitja hrottalegri líkamsárás í húsi við Grettisgötu í byrjun júní. Sá sem ráðist var á hlaut lífshættulega áverka af árásinni, sem stóð næturlangt. Hann þurfti að vera um skeið í öndunarvél. Þriðja líkamsárásin þar sem sumir gæslufanganna koma við sögu var í Smáíbúðahverfinu í Reykjavík, einnig í júní. Þá var ráðist á mann og hann illa leikinn. Hann hlaut brot í andliti og marga langa og gapandi skurði á höfði.
Mest lesið „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Innlent Gleði á flöskuborði endaði með ásökun um nauðgun Innlent Fólki ráðlagt að fylgjast vel með veðurspám Veður Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum Innlent Trump vill ekki flýta sér Erlent Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Innlent Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Innlent „Ekki í lífshættu“ Innlent Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Innlent „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ Innlent Fleiri fréttir Jarðskjálfti við Bárðarbungu í nótt „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Gleði á flöskuborði endaði með ásökun um nauðgun Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum „Ekki í lífshættu“ Flugáætlun Icelandair hafi fallið á álagsprófi Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Sérsveitin bregst við „alvarlegu atviki“ á Kársnesi „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ „Hvað hafa þau að fela?“ Enn öðru flugi aflýst Lögregluaðgerð á Laugavegi Sprengisandur: Páll stýrir þéttpökkuðum þætti Skjálftahrina úti af Reykjanesi Maðurinn er fundinn „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns „Einhvers konar toppur á ísjakanum“ Tvö mál ráði úrslitum Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Almennur borgari veitti bílnum eftirför Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Sjá meira