Prófmál: Þarf að borga myntkörfulán á núverandi gengi 3. desember 2009 14:37
Karlmaður var dæmdur til þess að greiða eftirstöðvar bifreiðar sem hann var með á kaupleigu og fjármagnaði með myntkörfuláni hjá SP-fjármögnun árið 2007. Það var Björn Þorri Viktorsson sem varði manninn en um prófmál er að ræða en því hefur verið haldið fram að slík lán væru ólögleg. Dómurinn var kveðinn upp í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Í dómnum segir að lántakandinn hafi vitað að um erlent lán hafi verið að ræða og er vitnað í samning þess eðlis að myntkörfulán voru áhættusamari en önnur lán og að maðurinn gerði sér fulla grein fyrir því. Lánið sem um ræðir var blandað í japönskum jenum og svissneskum frönkum. Í dómnum segir: „Gengisþróun hefur orðið flestum Íslendingum undanfarið ákaflega óhagfeld. Á þeirri þróun getur SP-fjármögnun hf. hins vegar ekki borið ábyrgð. Þá er ósannað að SP-fjármögnun hf. hafi með einhverjum hætti nýtt sér hugsanlega fákunnáttu lántakanda um gjaldeyrismál eða stuðlað að því að honum hafi hugsanlega verið gefnar rangar eða villandi upplýsingar um þau efni eða gengistryggingu leigugreiðslu. Ekki eru því efni til að víkja frá þeirri meginreglu íslensks samningsréttar að samningar séu skuldbindandi fyrir aðila þeirra." Í fáum orðum þá þarf lántakandinn að greiða myntkörfulán sitt upp á 4,3 milljónir króna. Það var upphaflega 3,6 milljónir. Fyrir áhugasama má lesa dóminn hér.
Mest lesið „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Innlent Gleði á flöskuborði endaði með ásökun um nauðgun Innlent Trump vill ekki flýta sér Erlent Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum Innlent Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Innlent Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Innlent „Ekki í lífshættu“ Innlent Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Innlent „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ Innlent Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Innlent Fleiri fréttir Jarðskjálfti við Bárðarbungu í nótt „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Gleði á flöskuborði endaði með ásökun um nauðgun Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum „Ekki í lífshættu“ Flugáætlun Icelandair hafi fallið á álagsprófi Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Sérsveitin bregst við „alvarlegu atviki“ á Kársnesi „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ „Hvað hafa þau að fela?“ Enn öðru flugi aflýst Lögregluaðgerð á Laugavegi Sprengisandur: Páll stýrir þéttpökkuðum þætti Skjálftahrina úti af Reykjanesi Maðurinn er fundinn „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns „Einhvers konar toppur á ísjakanum“ Tvö mál ráði úrslitum Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Almennur borgari veitti bílnum eftirför Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Sjá meira