Erlent

Mannskætt maraþon í Michigan

Atli Steinn Guðmundsson skrifar
Sigurvegarar maraþonsins í fyrra koma í mark. Þeir lifa enn eftir því sem best er vitað.
Sigurvegarar maraþonsins í fyrra koma í mark. Þeir lifa enn eftir því sem best er vitað.

Þrír þátttakendur í maraþonhlaupi í Detroit í Michigan létust í hlaupinu sem fram fór í gær. Maður á sjötugsaldri datt og fékk högg á höfuðið en hinir tveir, sem voru 26 og 36 ára gamlir, hnigu niður í hlaupinu og voru úrskurðaðir látnir við komu á sjúkrahús. Öll dauðsföllin áttu sér stað nálægt endamarki hlaupsins og öll urðu þau á sömu tuttugu mínútunum. Hvorki læknar né lögregla kunna nokkrar skýringar á þessum voveiflegu dauðsföllum, ekki var sérstaklega heitt í veðri og engar sérstakar aðstæður voru fyrir hendi sem geta hafa valdið dauða hlauparanna.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×