Lagt verði blátt bann við ósannindum 4. desember 2009 04:00 Siðareglna fyrir ráðherra og starfsfólk stjórnarráðsins er að vænta. fréttablaðið/stefán
Banna á ráðherrum og embættismönnum að segja ósatt, hagræða sannleikanum og hygla vinum, ættingjum og kunningjum. Þetta er meðal ábendinga sem bárust frá almenningi við tillögur að siðareglum fyrir ráðherra og starfsfólk stjórnarráðsins. Fjórtán sendu inn athugasemdir en frestur til þess rann út í nóvember. Samkvæmt upplýsingum úr forsætisráðuneytinu fögnuðu ýmsir því að siðareglur skyldu settar en einnig kom fram það sjónarmið að reglusetningin væri sýndarmennska og tímasóun. Ábendingar komu fram um að drög að reglunum væru í sumum tilfellum of almenn og var í þeim efnum til dæmis bent á orðanotkunina „persónuleg tengsl“ og „hagsmunaárekstrar.“ Ein tillagan var á þá leið að fært yrði í siðareglurnar að ráðherrar mættu ekki halda dýrar veislur fyrir ríkisfé nema bjóða öllum almenningi til veislunnar. Önnur kvað á um að skera bæri niður öll fríðindi ráðamanna og taka ætti fyrir að ráðherrar og starfsfólk stjórnarráðsins þæðu styrki sem ætlaðir væru námsmönnum, lista- eða fræðimönnum. Þá var gerð athugasemd við að kaup á kynlífsþjónustu væru sögð brot á siðareglum því slík kaup væru væntanlega lögbrot. Loks var kallað eftir því að skýr viðurlög væru við brotum á siðareglunum. Í starfshópi um siðareglur fyrir ráðherra og stjórnarráðsstarfsfólk sitja Páll Þórhallsson, skrifstofustjóri í forsætisráðuneytinu, Halldóra Friðjónsdóttir, starfsmaður fjármálaráðuneytisins, og Jón Ólafsson, prófessor við Háskólann á Bifröst. Samkvæmt upplýsingum úr forsætisráðuneytinu áformar forsætisráðherra að leggja fram á þingi á næstunni frumvarp til laga þar sem siðareglunum verður veitt lagastoð og kveðið á um eftirfylgni með þeim. - bþs
Mest lesið Ísraelskir ferðamenn með ógnandi tilburði á palestínsku kaffihúsi Innlent „Þessa vanlíðan þekkir enginn nema að hafa upplifað hana“ Innlent Fjöldi ökumanna á von á kæru Innlent Nágranninn bjargaði Sævari sem missti næstum af almyrkvanum Innlent Sigurgeir þurfti að hætta og var fluttur á sjúkrahús Innlent Það er jóker í spilinu Innlent „Þá er verið að hugsa um mögulegt viðbragð í neyðarástandi“ Innlent Brotist inn í Barnaloppuna Innlent „Bara, hvað dettur gömlu fólki í hug að gera?“ Innlent Sextán ára drengur stunginn til bana í busavígslu Erlent Fleiri fréttir Viðreisn fjarlægir bænina af Facebook: „Við viljum ekki særa fólk“ Gerir upp hús hannað af Guðjóni Samúelssyni Á sjötta tug björgunarsveitarfólks kom að björguninni Ekki fleiri tilkynnt innbrot síðan 2022 „Þá er verið að hugsa um mögulegt viðbragð í neyðarástandi“ Þyrla Landhelgisgæslunnar kölluð út vegna veikinda Forystumenn láti stór orð falla sér og sínum málstað til framdráttar Þyrlan sótti slasaðan göngumann við Glym Spánverjum fjölgar þvert á þróunina Sigurgeir þurfti að hætta og var fluttur á sjúkrahús Það er jóker í spilinu Skoða hvort gerviaðgangar og grunsamlegar síður séu erlend öfl í dulbúningi Páll Magnússon tekur við af Kristjáni Nágranninn bjargaði Sævari sem missti næstum af almyrkvanum Brotist inn í Barnaloppuna Kristján Kristjánsson kveður Sprengisand Íbúi í Kænugarði um stríðið og áhyggjur lögreglu af erlendum áhrifum á ESB-kosningu Fortíð og framtíð Íslands í Evrópu á Sprengisandi Mundaði stólinn og lamdi gesti „Bara, hvað dettur gömlu fólki í hug að gera?“ Þrengja Reykjaveg og loka tveimur götum við Laugarnesskóla Fjöldi ökumanna á von á kæru Ísraelskir ferðamenn með ógnandi tilburði á palestínsku kaffihúsi Þyrlan sækir slasaðan mann á Hestfjall Miðflokksmenn helmingi líklegri til að segja já en Sjálfstæðismenn Ósátt með fyrirhugaða sameiningu lögregluembætta Grindvískir krakkar sneru aftur á völlinn Lögnin komin á land en verður látin kyrr liggja „Önnur ríki með sérþarfir hafa miklu meira vægi í þeirri umræðu“ Bananastappa og hlaupbangsar á matseðlinum í tilraun tvö Sjá meira