Ákvörðun um ákæru tekin á morgun 29. desember 2009 06:00
Litháíska konan, sem talin er vera fórnarlamb mansals og kom hingað til lands í október síðastliðnum, hefur verið seld ítrekað í vændi í heimalandi sínu að eigin sögn. Þetta kom fram í fréttum Stöðvar 2 í gærkvöldi. Í upphafi málsins höfðu þrettán manns stöðu sakbornings, en fimm Litháar og einn Íslendingur eru nú grunaðir um aðild að því. Ákvörðun um ákæru verður tekin á miðvikudag. Af þeim þrettán sem höfðu réttarstöðu sakbornings við upphaf rannsóknar voru sex Íslendingar og sjö útlendingar. Fimm Litháar sitja nú í gæsluvarðhaldi sem rennur út á miðvikudaginn. Þeir hafa verið í gæsluvarðhaldi í tólf vikur. Einn Íslendingur liggur einnig undir grun en hann er ekki í gæsluvarðhaldi. Stúlkan, sem talin er fórnarlamb mansals, er nítján ára. Hún var stöðvuð þegar hún kom til landsins í október eftir að hafa látið ófriðlega í flugvél. Hún var með fölsuð skilríki. Á miðvikudag hyggst ákæruvaldið leggja fram kröfu um framlengingu gæsluvarðhalds yfir Litháunum. Kolbrún Sævarsdóttir, saksóknari hjá Ríkissaksóknara, segir að á miðvikudaginn verði búið að taka ákvörðun um hvort mennirnir sex verði ákærðir. Farið verði fram á að stúlkan beri vitni í réttarhöldunum. Refsiramminn fyrir mansal er átta ára fangelsi. Samkvæmt heimildum Stöðvar 2 segist stúlkan hafa verið seld ítrekað í vændi í Litháen áður en hún kom til Íslands. Við skýrslutökur hafi hún sagt að sér hafi verið haldið nauðugri í íbúð í fjölbýlishúsi í fjóra mánuði seinni hluta síðasta árs. Litháarnir fimm tengjast innbyrðis en neita allir sök. - aó
Mest lesið Ökumaður bifhjólsins látinn Innlent Ógeðsleg aðkoma að íbúðinni eftir Airbnb-gesti Innlent Ísland leggur til fólk í finnskar herstöðvar Innlent Alvarlegt mótorhjólaslys og Miklubraut lokað Innlent „Það er enginn svartur listi hjá okkur“ Innlent „Nú verður að hafa hraðar hendur“ Innlent Óska eftir vitnum: Missti stjórn og hafnaði á vegriði Innlent „Það er engin ástæða til að gefast upp“ Innlent Ljóstruðu upp um heimilisfang sænska forsætisráðherrans á Strava Erlent Dettifoss vélarvana úti á ballarhafi Innlent Fleiri fréttir Lögreglan lýsir eftir Arnari Hauki „Skýr vísbending um að gera þurfi betur í málefnum erlendra barna“ Sjúklingar óttist dómhörku vegna þyngdarstjórnunarlyfja „Það er engin ástæða til að gefast upp“ Reiðarslag fyrir Landsvirkjun, kjarnorkukafbátur og heimsfræg íslensk kisa „Í næstu umferð fara hlutirnir í gegn“ Tilkynnt um buxnalausan mann og stolinn pizzaofn „Það er enginn svartur listi hjá okkur“ Davíð hafi lagt Golíat Hlaup er hafið úr Mýrdalsjökli Ökumaður bifhjólsins látinn Dettifoss vélarvana úti á ballarhafi Flugvél snúið við vegna bilunar „Enn ein viðurkenning að það má brjóta á fötluðu fólki“ Ógeðsleg aðkoma að íbúðinni eftir Airbnb-gesti Óska eftir vitnum: Missti stjórn og hafnaði á vegriði Bíða niðurstaðna um magakveisuna á Laugarvatni Dómurinn vonbrigði en virkjunin ekki út úr myndinni Kona á fimmtugsaldri í haldi vegna hnífstunguárásar „Nú verður að hafa hraðar hendur“ Hvammsvirkjun í uppnámi og ókyrrð hjá Play Hæstiréttur hafnar Hvammsvirkjun Inga Sæland með galsa á þingi í nótt „Orðaskiftismetið tikið“ Bifhjólamaðurinn „mikið slasaður“ Alvarlegt mótorhjólaslys og Miklubraut lokað Ungt fólk notar frekar samfélagsmiðla en hefðbundna fréttamiðla Stór meirihluti þjóðarinnar hlynntur veiðigjaldafrumvarpinu „Þú ert mögulega búin að nota gagnaver 400 sinnum síðan í morgun“ Kjarnorkukafbátur í höfn í fyrsta sinn Sjá meira