Innlent

Icesave-umræðan komin á lokasprett

Þingfundur Þingmennirnir Jónína Rós Guðmundsdóttir, Helgi Hjörvar, Þráinn Bertelsson, Eygló Harðardóttir og Ragnheiður Elín Árnadóttir hlýddu á umræður um Icesave á Alþingi í gær. Fréttablaðið/Pjetur
Þingfundur Þingmennirnir Jónína Rós Guðmundsdóttir, Helgi Hjörvar, Þráinn Bertelsson, Eygló Harðardóttir og Ragnheiður Elín Árnadóttir hlýddu á umræður um Icesave á Alþingi í gær. Fréttablaðið/Pjetur

Sjálfstæðismenn og framsóknarmenn lögðu í gær fram hvorir sína frávísunartillögu við Icesave-frumvarp ríkisstjórnarinnar. Þriðja og síðasta umræða um ríkisábyrgð á Icesave hófst á Alþingi í gær. Þá kom þing saman milli jóla og nýárs í fyrsta skipti frá árinu 1994 og í fjórða skipti á lýðveldistímanum.

Við upphaf þingfundar var samþykkt, gegn andmælum stjórnarandstöðunnar, að halda kvöldfund um málið. Ríkisstjórnarmeirihlutinn stefnir að því að ljúka afgreiðslu Icesave-málsins í dag eða í síðasta lagi á morgun. Verði allir tímafrestir nýttir í ræðum og andsvörum getur umræðan staðið í allt að fjörutíu klukkustundir.

Frávísunartillaga, sem fylgir framhaldsnefndaráliti Höskuldar Þórhallssonar fyrir hönd Framsóknarflokksins, gerir ráð fyrir því að Alþingi vísi málinu frá og feli ríkisstjórninni „að taka upp viðræður á nýjan leik við bresk og hollensk stjórnvöld á grundvelli Brussel-viðmiðanna. Leitað verði eftir pólitískum farvegi til lausnar deilumálinu eða samningsniðurstöðu á sanngjarnari forsendum.“

Frávísunartillaga sem Kristján Þór Júlíusson bar fram fyrir hönd Sjálfstæðisflokksins, gerir ráð fyrir að Alþingi vísi málinu frá og „úrslitatilraun verði gerð til að verja hagsmuni þjóðarinnar“.

„Augljóst er að ekki er hægt að fara í samningaumleitanir við þessar þjóðir nema að því komi formenn allra flokka á Alþingi,“ segir í greinargerð sjálfstæðismanna. Að óbreyttu beri að fella frumvarpið. Bretar og Hollendingar verði þá að láta sér lynda „að fara með ágreining þennan í eðlilegan lagalegan farveg fyrir íslenskum dómstólum“.

Guðbjartur Hannesson, formaður fjárlaganefndar og framsögumaður ríkisstjórnarmeirihlutans, mælti fyrir samþykkt frumvarpsins og sagði að nú væri komið að endalokum umræðu um Icesave. Málið hefði fengið vandaðri og ítarlegri meðferð en nokkurt annað þingmál.

„Við erum komin að endalokum í þessu máli og verðum að gjöra svo vel að taka afstöðu. Við getum ekki vænst þess að aðrir geri það fyrir okkur,“ sagði Guðbjartur.

peturg@frettabladid.is




Fleiri fréttir

Sjá meira


×