Hittu Obama-hjónin á Havaí á jóladag 29. desember 2009 06:00 Fær litinn sinn Barack Obama Bandaríkjaforseti og kona Michelle spjalla við Önnu Soffíu og yngri son hennar, Thorarinn Edward, á jóladag. Forsetinn hafði nýlokið við að rétta Thorarni vaxlit sem sá stutti missti í gólfið. Fréttablaðið/AP
Fjölskylda Önnu Soffíu Jóhannsdóttur Ryan hitti Barack Obama Bandaríkjaforseta og Michelle, eiginkonu hans, á jóladag. Eiginmaður Önnu Soffíu er yfirmaður í sjóher Bandaríkjanna og staðsettur á Havaí. Forsetafjölskyldan á heimili skammt frá herstöðinni, en Obama er frá Havaí. Þetta er annað árið í röð sem fjölskyldan hittir Bandaríkjaforseta á þessum degi, en Obama og eiginkona hans eyddu um þremur klukkustundum með hermönnunum og fjölskyldum þeirra. Eiginmaður Önnu Soffíu heitir John Michael Ryan, en synir þeirra, Thorarinn Edward og William Patrik, eru tveggja og þriggja ára gamlir. Karen H. Jónsdóttir, móðir Önnu Soffíu, segir nokkurn samgang milli íbúa í herstöðinni og Obama-fjölskyldunnar. Þannig hafi Anna Soffía brugðið sér í mínigolf á sunnudag og þá hafi forsetinn komið þar að og leikið golf á næstu braut. „Hann á heimili þarna rétt hjá þeim við ströndina,“ segir hún. Móðir Önnu Soffíu segir að dóttir sín og John Michael, maður hennar, hafi kynnst hér á landi, en þau giftu sig í Keflavíkurkirkju árið 2003. Eiginmaður Önnu Soffíu var hér með sjóhernum, en var svo sendur til Íraks og víðar. Að þeim tíma loknum flutti Anna Soffía út til hans, en þau hafa búið í Lundúnum, Washington og nú síðast á Havaí. - óká
Mest lesið „Þetta mál er náttúrulega bara einn harmleikur“ Innlent Konan sem fannst meðvitundarlaus í tjaldi látin Innlent Stutt í að beint flug til Kína fari í sölu Innlent „Ef þú ætlar austur verður þú að fara norðurleiðina“ Innlent Vonar að verslanir hafi lært af reynslunni Innlent Hvað er best að gera þegar maður er bitinn? Innlent Rannsaka kynferðisbrot og líkamsárás á Landsmóti Innlent Heilbrigðiseftirlitið ekki áður séð mengun í fjörunni við vinnslustöð Hvals Innlent Var illa sofin og endaði á bíl úr gagnstæðri átt Innlent Ríkissaksóknari telur að Margrét eigi ekki að fá að áfrýja til Landsréttar Innlent Fleiri fréttir Heilbrigðiseftirlitið ekki áður séð mengun í fjörunni við vinnslustöð Hvals Unnið að hrunvörnum við Holtsnúp Hluti af þriðja vinningi lenti á Íslandi Stutt í að beint flug til Kína fari í sölu Ríkissaksóknari telur að Margrét eigi ekki að fá að áfrýja til Landsréttar Gagnrýna könnun sem sýni fram á stuðning við dánaraðstoð Breiðholtsbrú opin fyrir umferð Vonar að verslanir hafi lært af reynslunni Rannsaka kynferðisbrot og líkamsárás á Landsmóti Gefur engin fyrirheit um lækkun áfengisgjalda Kynferðisbrot á Hólum og gular viðvaranir Konan sem fannst meðvitundarlaus í tjaldi látin „Ef þú ætlar austur verður þú að fara norðurleiðina“ „Þetta mál er náttúrulega bara einn harmleikur“ Þrír handteknir fyrir brot á lögreglusamþykkt Erfitt að stöðva umfangsmikla sölu Var illa sofin og endaði á bíl úr gagnstæðri átt Hvað er best að gera þegar maður er bitinn? Bandero yfirgefur Íslandsmið vegna veikinda Hryðjuverkamálið, Landsmót hestamanna og neytendur „hafðir að fíflum“ með Lite-bjórum „Vinalegt“ spjall í bílakjallara sem varð að manndrápstilraun „Svimandi“ bótakröfur á leiðinni frá Sindra Snæ og Ísidóri Strandamenn klárir í almyrkvann Hryðjuverkamálinu lokið fjórum árum eftir handtöku „Sannarlega áhugaverð gjöf“ Þyngja þurfi dóma þeirra sem láta sér ekki segjast „Hver þarf Tenerife þegar þú hefur Hérað?“ Segir undanþágur rekast á grunnforsendur ESB „Erfitt að vera svona lengi úti á sjó“ Flýtir afgreiðslu um allt að mánuð Sjá meira