Erlent

Loftbelgsdrengurinn kominn fram

Atli Steinn Guðmundsson skrifar
Drengurinn, Falcon Heene, ásamt föður sínum.
Drengurinn, Falcon Heene, ásamt föður sínum.

Sex ára gamli drengurinn, sem talið var að hefði svifið á brott með loftbelg í Colorado í gær, fannst heill á húfi undir kvöld. Reyndist hann hafa falið sig í kassa uppi á háalofti og fallið þar í fastasvefn. Mikil skelfing greip um sig þegar loftbelgurinn, sem faðir drengins á og notar við rannsóknir, sveif á brott og fylgdi fjölmennt lið honum eftir þar til hann fannst í garði nálægt Colorado Springs rúmlega einni og hálfri klukkustund síðar. Feðgarnir komu fram í þætti Larry King í gærkvöldi og ræddu þar um atburðarásina.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×