Idol úrslit 2009 - myndir 19. maí 2009 10:59 Það var hin 21 árs gamla Hrafna frá Djúpavogi sem hlaut sigur úr bítum með rúmlega 60% atkvæða og er Idol stjarna Íslands 2009. Hátt í 70.000 atkvæði bárust í símakosningunni.
Þegar úrslitin í Idolinu voru kynnt ætlaði allt um koll að keyra á áhorfendapöllunum í Smáralind. Það var hin 21 árs gamla Hrafna frá Djúpavogi sem hlaut sigur úr bítum með rúmlega 60% atkvæða og er Idol stjarna Íslands 2009. Hátt í 70.000 atkvæði bárust í símakosningunni. Á móti henni í úrslitunum keppti hin 24 ára gamla Anna Hlín. Báðar stúlkurnar sungu þrjú lög í kvöld, eitt að eigin vali, annað sem samið var sérstaklega fyrir kvöldið og hið þriðja sem dómnefndin valdi fyrir þær. Báðar stóðu þær sig glimrandi vel, en það gat því miður aðeins önnur þeirra staðið uppi sem sigurvegari. Það er á engan hallað þótt sagt sé að Hrafna hefur sífellt komið á óvart í keppninni, en einlægni hennar og fallegi tónn náði að lokum að sigra hjarta landsmanna og tryggja henni sigursætið. Þegar hún flutti sigurlagið, Ég fer alla leið, samglöddust hinir 11 úrslitakeppendurnir henni, enda er hún mjög vel liðin af öllum í Idolinu. Ferðalag Hröfnu í Idolinu hefur verið ævintýri líkast, og ef maður mætti velja eitt væri það ævintýrið um hana Öskubusku sem kemur sterkt í hugann. Hrafna kom í áheyrnarprufu fyrir Idolið ásamt systur sinni, hafði sig svolítið til baka og ekki er hægt að segja að hún hafi litið út eins og næsta poppstarna Íslands. Hún var kölluð af dómurum "poppstjarna í dulargervi barnapíu" til að byrja með, en síðan hefur margt vatn runnið til sjávar. Hún hefur gjörsamlega blómstrað sem söngkona og aukið öryggi sitt með hverri vikunni og uppi stendur stórglæsileg ung kona með bjarta framtíð fyrir sér á tónlistarbrautinni. Hún fór alla leið og lærði eins mikið og hún gat og var hrein og bein á meðan. Við óskum Hröfnu innilega til hamingju með titillinn og að sjálfsögðu 2 milljónir króna sem hún hlaut í verðlaun. Hún hyggst nýta peningana til góðra nota við áframhaldandi tónlistariðkun og nám. Ævintýrin gerast enn og ljóst er að í Idolinu - getur allt gerst.
Mest lesið Stórglæsilegt Sigvaldahús á sölu Lífið Nicole er fyrir norðan Lífið Lofar að minnast Panettiere ávallt af virðingu Lífið Hemma Gunn-stytta og heitur pottur í 192 milljóna króna raðhúsi Lífið Galvaskt gelludjamm hjá Guggu og guggunum Lífið Hvað veistu um... frjálsar íþróttir? Lífið Leikkonan var úrskurðuð látin á vettvangi Lífið Bestu hlutverk Hayden Panettiere Bíó og sjónvarp Barnalán hjá Brynju Dan Lífið Sunneva Einars áfram langtekjuhæsti áhrifavaldurinn Lífið Fleiri fréttir Sunneva Einars áfram langtekjuhæsti áhrifavaldurinn „Ógleymanlegt söngævintýri“ með Nicole Kidman Prjóna á klúbbnum án þess að prjóna yfir sig Hemma Gunn-stytta og heitur pottur í 192 milljóna króna raðhúsi Verjendur Davis segja ekkert að marka skjólstæðing sinn Lofar að minnast Panettiere ávallt af virðingu Stórglæsilegt Sigvaldahús á sölu Leikkonan var úrskurðuð látin á vettvangi Hvað veistu um... frjálsar íþróttir? Galvaskt gelludjamm hjá Guggu og guggunum Nicole er fyrir norðan Egill Heiðar og Kittý selja Garðabæjarslotið Helstu samsæriskenningarnar um Evrópusambandið „Ein miðaldra kona að tala um að hún hefði viljað mæta“ Barnalán hjá Brynju Dan Herra og frú Crivello hamingjusöm hjón Svana á tímamótum og selur slotið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Leikkonan Hayden Panettiere er látin Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Þórdís Elva er gengin út Efna til söfnunar í minningu Hennings Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Krakkatía vikunnar: Tinni, flekar og stór augu Þórdís Kolbrún fékk hlýjar móttökur Adam Driver mættur í Marvel-heiminn Fréttatía vikunnar: Björk, Usher og peningaþvætti Sjá meira