Snittur í stað bólusetningar Lóa Pind Aldísardóttir skrifar 5. desember 2009 18:58 Utanríkisráðuenytið eyðir mestu í veisluhöld.
Bólusetja mætti 80 prósent tólf ára stúlkna á Íslandi við leghálskrabbameini fyrir það fé sem ráðuneytin hafa varið í veitingar á þessu ári. Nú er niðurskurður á næstum öllum vígstöðvum. Heimilin spara rétt eins og hið opinbera, veitingar og veislur eru meðal þess sem hagsýnir landsmenn skera við trog. Því kallaði fréttastofa eftir upplýsingum frá öllum ráðuneytum um veitinga- og veislukostnað það sem af er ári. Þrjú ráðuneyti skera sig úr, félagsmálaráðuneytið hefur minnstu eytt, samgönguráðuneytið aðeins meira og þá viðskiptaráðuneytið. Fjármálaráðuneytið er í fjórða sæti með eina og hálfa milljón. Umhverfisráðuneytið er næst með 2,3 milljónir, þá menntamálaráðuneytið með 2,7 - en taka má fram að þar hefur veitingakostnaður snardregist saman á milli ára. Í sjöunda sæti er forsætisráðuneytið - sem hefur skorið risnu og ferðir niður um helming það sem af er ári, þá ráðuneyti heilbrigðismála, síðan dómsmála með hátt í fimm milljónir - en fjórðungur af því er vegna norræns ráðherrafundar í sumar, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytið hefur eytt 7,6 milljónum - en yfir helmingurinn af því er vegna norræns ráðherrafundar í sumar, og iðnaðarráðuneyti með 8,8 milljónir. Og loks er það utanríkisráðuneytið sem eyðir langmestu í veitingar, móttökur, fundi og ráðstefnur, tilefnin eru 300, reikningurinn er 14,4 milljónir króna. Samanlagt, um 51 og hálf milljón. Ófært yrði líklega að skera niður allan veitingakostnað hjá ráðuneytunum. En til að átta sig á upphæðunum, má benda á það myndi kosta ríkissjóð um 65 milljónir króna að bólusetja allar tólf ára stúlkur gegn leghálskrabbameini. Sóttvarnarráð hefur mælt með því og talið er að bólusetning gæti komið í veg fyrir tvö dauðsföll árlega.
Mest lesið Hanna Katrín fékk bréf frá Judi Dench og Ricky Gervais Innlent Lokuðu flugbraut vegna dróna Innlent „Gefa löggjafanum og lögreglunni fingurinn og fólkinu í landinu líka“ Innlent „Þetta er algjörlega óafsakanlegt hjá einu af ríkustu löndum í heimi“ Innlent Minnst 27 létust þegar eldur kviknaði á bar í Taílandi Erlent Innbrot í kirkju á höfuðborgarsvæðinu Innlent Umferðarteppa á Hellisheiði vegna umferðaróhapps Innlent Sektuðu í grennd við Símamótið Innlent Níu ára stúlka meðal þeirra sem fórust og árásir enn nær daglegt brauð Erlent „Við erum að svara kalli tímans“ Innlent Fleiri fréttir Innbrot í kirkju á höfuðborgarsvæðinu Lokuðu flugbraut vegna dróna Hanna Katrín fékk bréf frá Judi Dench og Ricky Gervais „Gefa löggjafanum og lögreglunni fingurinn og fólkinu í landinu líka“ Sektuðu í grennd við Símamótið „Við erum að svara kalli tímans“ Búið að opna Holtavörðuheiði aftur Umferðarteppa á Hellisheiði vegna umferðaróhapps Á fimmta tug barna vilja sækja skóla í Grindavík „Þetta er algjörlega óafsakanlegt hjá einu af ríkustu löndum í heimi“ Hvalur skaut up kollinum í Hólmavík Mælirinn segir 33 gráður „Af og frá“ að Ísland framselji löggjafarvaldið með inngöngu Atvinnulausum í byggingariðnaði fjölgar gríðarlega Þrjú kynferðisbrot á tónleikasvæðinu til rannsóknar Brotist inn og peningaskápur tekinn Þrír gistu í fangageymslu og töluvert um fölsuð skilríki Hitabylgjur, fullveldi og Megas Þrír handteknir grunaðir um líkamsárás Heilbrigðiseftirlitið ekki áður séð mengun í fjörunni við vinnslustöð Hvals Unnið að hrunvörnum við Holtsnúp Hluti af þriðja vinningi lenti á Íslandi Stutt í að beint flug til Kína fari í sölu Ríkissaksóknari telur að Margrét eigi ekki að fá að áfrýja til Landsréttar Túlka verði niðurstöðurnar af varfærni Breiðholtsbrú opin fyrir umferð Vonar að verslanir hafi lært af reynslunni Rannsaka kynferðisbrot og líkamsárás á Landsmóti Gefur engin fyrirheit um lækkun áfengisgjalda Kynferðisbrot á Hólum og gular viðvaranir Sjá meira