Umferðarslys og sjálfsvíg algengustu dánarorsakir Jón Hákon Halldórsson skrifar 20. nóvember 2009 13:48
Umferðarslys eru algengasta dánarorsök íslenskra kvenna á aldrinum 17-26 ára, samkvæmt samantekt sem Umferðarstofa hefur gert. Samantektin sýnir annarsvegar dánarmein ungs fólks á Íslandi á aldrinum 17 - 26 ára og hinsvegar dánarmein fólks á aldrinum 27 - 36 ára. Í henni er stuðst við upplýsingar frá Hagstofunni en jafnframt er stuðst við tölur úr slysaskrá Umferðarstofu á 10 ára tímabili frá 1999 til 2008. Niðurstöðurnar sýna að umferðarslys er tvöfalt algengari orsök hjá konum á aldrinum 17-26 ára en sjálfsvíg sem er næst algengasta orsök. Sextán konur í þessum aldurshópi létust í umferðarslysum en helmingi færri þ.e. 8 af völdum sjálfsvíga. Hjá ungum karlmönnum eru sjálfsvíg hinsvegar algengasta dánarorsök eða 71 tilfelli en umferðarslys koma þar næst á eftir í 45 tilfellum. Það eru mun fleiri karlmenn eða 195 sem létu lífið í þessum aldurshópi en konurnar voru 61. Ekki er mikill munur á hlutfallslegri tíðni dauðsfalla af völdum umferðarslysa innan hvors hóps fyrir sig en þau eru um fjórðungur hjá báðum kynjum.Krabbamein og sjálfsvíg algengasta dánarorsökin hjá 27-36 ára Þegar tölur um dánarmein beggja kynja á aldrinum 17 - 26 ára eru lagðar saman kemur í ljós að það eru mestar líkur á að ungt fólk deyi af völdum sjálfsvíga og umferðarslysa. Þegar eldri hópurinn er skoðaður, þ.e. 27 - 36 ára er skoðaður, kemur hinsvegar í ljós að mikil breyting á sér stað hvað varðar helstu dánarorsakir í samanburði við yngri hópinn. Þar er krabbamein orðið næst algengasta dánarmeinið í 50 tilfellum en „sjálfsvíg og vísvitandi sjálfsskaði" er í 60 tilfellum enn algengasta dánarmeinið. Í eldri hópnum eru umferðarslys þriðja algengasta orsök með 26 tilfelli en þau voru 61 í yngri hópnum. Samtals eru umferðarslys og sjálfsvíg dánarmein í 55% tilfella í yngri hópnum en 38% tilfella eldri hópsins. Það er því ljóst að með markvissu og víðtæku átaki til fækkunar umferðarslysum og sjálfsvígum væri hægt að auka lífslíkur fólks í þessum aldurshópum til muna - sérstaklega yngri hópsins.
Mest lesið Svona berðu kennsl á fyrstu einkenni heilabilunar Innlent Ríkið borgar brúsann vegna langdreginnar rannsóknar á árás við skólalóð Innlent Alvarlegar líkamsárásir í Reykjavík Innlent Hélt um fætur eiginmannsins meðan hann sogaðist úr glugga í háloftunum Erlent „Búnir að þróa með sér spilafíkn áður en þeir byrja að veðja“ Innlent Ekki eigi að leyfa frekjukallinum að vaða uppi Innlent „Ég hélt að það erfiðasta yrði að lifa af nauðgunina sjálfa“ Innlent Telja Sævar hafa verið tengilið Kastriots við skipverjana Innlent Grobba sig af stolnum trjám Innlent Tugir innbrota til rannsóknar hjá lögreglu Innlent Fleiri fréttir Gyðingaandúð, netsala áfengis og skólahald í Grindavík Slökkviliðsstjóri lætur af störfum eftir ábendingar Simmi biður Söndru og sjúkraliðana afsökunar Tugir innbrota til rannsóknar hjá lögreglu Alvarleg líkamsárás á borði miðlægrar rannsóknardeildar „Búnir að þróa með sér spilafíkn áður en þeir byrja að veðja“ Ríkið borgar brúsann vegna langdreginnar rannsóknar á árás við skólalóð Alvarlegar líkamsárásir í Reykjavík Svona berðu kennsl á fyrstu einkenni heilabilunar Styrkt verkefni í fyrra sem spari þjóðinni 93 milljarða króna Lítil bjartsýni á úrslitastundu Ekki eigi að leyfa frekjukallinum að vaða uppi Loks fengið varanlegt heimili eftir yfir hundrað ár á Íslandi Grobba sig af stolnum trjám „Ég hélt að það erfiðasta yrði að lifa af nauðgunina sjálfa“ Óskiljanleg áfengissala, óvissa fyrir úrslitastund og úrkoman endalausa Dæmdur fyrir heimilisofbeldi en sagðist sjálfur hafa verið eins og gísl Telja Sævar hafa verið tengilið Kastriots við skipverjana „Stundum koma upp atvik“ Langflestir umsækjendur frá Úkraínu „Ef þú vilt græða þá ferðu í að selja loftkælingu í Evrópu“ „Þeir sem taka pening frá veðmálafyrirtækjum ættu að líta í eigin barm“ Byrjaði skyndilega að taka konuna hálstaki og hélt í 40 sekúndur Allt lið kallað út vegna elds í vélarrúmi „Það varð uppi fótur og fit“ Endurreisn mýranna megi ekki bíða lengur Olíuverð, trjáþjófnaður og áhrifagjörn ungmenni Hafnarfjörður hafði betur gegn Jóni Rúnari „Elliðaárnar eru bakkafullar af göngulaxi“ Innbrot í sælkerabakarí: „Ég grét í allan gærdag en opnaði samt“ Sjá meira