Lífsýni tekið úr dóttur Fischers Andri Ólafson skrifar 5. desember 2009 12:04
Lífsýni úr Bobby Fischer verður borið saman úr lífsýni sem tekið var úr filippseyskri stúlku í vikunni en hún er sögð dóttir skákmeistarans. Móðir stúlkunnar hefur fyrir hönd dóttur sinnar gert kröfu í dánarbúið sem er metið á 270 milljónir. Marilyn Young, fyrrum ástkona skákmannsins Bobby Fischer, er stödd hér á landi ásamt dóttir sinni Jinky, en hún er sögð dóttir skákmeistarans. Mæðgurnar eru frá Filippseyjum en Fischer var á leiðinni þangað að hitta Marilyn þegar hann var handtekinn á flugvellinum í Tókýó árið 2005 en þá hófst sú sérkennilega atburðarrás sem endaði með því að Fischer var veittur íslenskur ríkisborgararéttur. Marilyn þessi hyggst gera kröfu í dánarbú Fischers fyrir hönd dóttur sinnar. Áður höfðu komið fram tvær aðrar kröfur í dánarbúið, ein frá Miyoko Watai japanskri ekkju Fischers, og önnur frá systrabörnum hans. Til þess að liðka fyrir þessari kröfu mun Marylin samhliða þessu höfða faðernismál til að færa sönnur á að Fischer sé í raun faðir Jinky. Einn liður í því ferli var heimsókn hennar á landspítalann í vikunni þar sem lífsýni var tekið úr dóttir hennar. Það lífsýni verður svo borið saman við lífsýni úr Fischer, ef það er til. Ef ekki finnst nothæft lífsýni úr Fischer verður leitað til eftirlifandi ættingja hans, systrasonanna. Ef þeir fást ekki til að gefa sýni er aðeins eitt úrræði eftir, að grafa upp líkamsleifar skákmeistarans og taka úr þeim sýni. Þetta er í annað sinn sinn sem Marilyn Young kemur til Íslands. Í fyrra skiptið var Fischer enn á lífi og mæðgurnar heimsóttu hann og eyddu með honum tíma. Nú heimsóttu mæðgurnar hins vegar aðeins leiði Fischers rétt fyrir utan Selfoss. Dánarbú Fischers er veglegt. Metið á rúmar 270 milljónir króna en Fischer átti reikning í Landsbankanum þegar hann lést þar sem hann geymdi evrur og gull.
Tengdar fréttir Dóttir Fischers komin til Íslands og farin Marilyn Young, fyrrum ástkona skákmannsins Bobby Fischer,var stödd hér á landi ásamt dóttir sinni Jinky, en hún er sögð dóttir skákmeistarans. Marilyn hyggst gera kröfu í dánarbú Fischers fyrir hönd dóttur sinnar. 5. desember 2009 10:21 Mest lesið Hanna Katrín fékk bréf frá Judi Dench og Ricky Gervais Innlent Lokuðu flugbraut vegna dróna Innlent „Gefa löggjafanum og lögreglunni fingurinn og fólkinu í landinu líka“ Innlent „Þetta er algjörlega óafsakanlegt hjá einu af ríkustu löndum í heimi“ Innlent Minnst 27 létust þegar eldur kviknaði á bar í Taílandi Erlent Umferðarteppa á Hellisheiði vegna umferðaróhapps Innlent Níu ára stúlka meðal þeirra sem fórust og árásir enn nær daglegt brauð Erlent Sektuðu í grennd við Símamótið Innlent „Við erum að svara kalli tímans“ Innlent Búið að opna Holtavörðuheiði aftur Innlent Fleiri fréttir Lokuðu flugbraut vegna dróna Hanna Katrín fékk bréf frá Judi Dench og Ricky Gervais „Gefa löggjafanum og lögreglunni fingurinn og fólkinu í landinu líka“ Sektuðu í grennd við Símamótið „Við erum að svara kalli tímans“ Búið að opna Holtavörðuheiði aftur Umferðarteppa á Hellisheiði vegna umferðaróhapps Á fimmta tug barna vilja sækja skóla í Grindavík „Þetta er algjörlega óafsakanlegt hjá einu af ríkustu löndum í heimi“ Hvalur skaut up kollinum í Hólmavík Mælirinn segir 33 gráður „Af og frá“ að Ísland framselji löggjafarvaldið með inngöngu Atvinnulausum í byggingariðnaði fjölgar gríðarlega Þrjú kynferðisbrot á tónleikasvæðinu til rannsóknar Brotist inn og peningaskápur tekinn Þrír gistu í fangageymslu og töluvert um fölsuð skilríki Hitabylgjur, fullveldi og Megas Þrír handteknir grunaðir um líkamsárás Heilbrigðiseftirlitið ekki áður séð mengun í fjörunni við vinnslustöð Hvals Unnið að hrunvörnum við Holtsnúp Hluti af þriðja vinningi lenti á Íslandi Stutt í að beint flug til Kína fari í sölu Ríkissaksóknari telur að Margrét eigi ekki að fá að áfrýja til Landsréttar Túlka verði niðurstöðurnar af varfærni Breiðholtsbrú opin fyrir umferð Vonar að verslanir hafi lært af reynslunni Rannsaka kynferðisbrot og líkamsárás á Landsmóti Gefur engin fyrirheit um lækkun áfengisgjalda Kynferðisbrot á Hólum og gular viðvaranir Konan sem fannst meðvitundarlaus í tjaldi látin Sjá meira
Dóttir Fischers komin til Íslands og farin Marilyn Young, fyrrum ástkona skákmannsins Bobby Fischer,var stödd hér á landi ásamt dóttir sinni Jinky, en hún er sögð dóttir skákmeistarans. Marilyn hyggst gera kröfu í dánarbú Fischers fyrir hönd dóttur sinnar. 5. desember 2009 10:21