Innlent

Styrkja baðmenningu í höfuðborginni

Alls voru veittar sjö milljónir króna til nýsköpunar í ferðaþjónustu. fréttablaðið/Stefán
Alls voru veittar sjö milljónir króna til nýsköpunar í ferðaþjónustu. fréttablaðið/Stefán
Samtökin Vatnavinir ætla sér að þróa áfram hugmyndir um fjölbreyttari baðmenningu í Reykjavík og styrkja ímynd Reykjavíkur sem heilsuborg.

Vatnavinir eru meðal þeirra sem í sumar fengu styrki frá Reykjavíkurborg til nýsköpunar í ferðaþjónustu. Alls voru styrkir veittir til átta verkefna, sem samanlagt fengu sjö milljónir króna frá borginni. Á sjöunda tug hugmynda bárust. Hæsti styrkurinn fór til Vatnavina. Þeir vilja leggja áherslu á náttúruupplifun innan borgarmarkanna og sjá fyrir sér frekari tengingu við uppbyggingu útivistarsvæða.

Viðskipti erlendra ferðamanna eru drifkraftur í fjölmörgum þáttum atvinnulífs í borginni, ásamt því að eiga sinn þátt í vexti og viðgangi íslenskrar hönnunar.- gb



Fleiri fréttir

Sjá meira


×