Grýtti vískípela í tjaldvörð 16. júlí 2009 16:50 Þrastaskógur. Myndin tengist ekki fréttinni beint. Mynd/ Vilhelm
21 árs karlmaður var í dag dæmdur í skilorðsbundið fangelsi í 60 daga fyrir að kasta viskípela í síðu á tjaldverði þann 18. júlí 2008. Atvikið átti sér stað á tjaldstæðinu í Þrastaskógi og hafði þær afleiðingar að tjaldvörðurinn hlaut ílangan marblett vinstra megin á brjóstkassa aftanverðum, rétt neðan herðablaðs, bólgu þar undir og þreifieymsli. Tjaldvörðurinn hafði afskipti af manninum og vinum hans. Hann hringdi á lögreglu og bað um að nokkur ungmenni yrðu fjarlægð af tjaldsvæðinu vegna ölvunar. Þar sem hann stóð og talaði við lögregluna í símann fann hann fyrir þungu höggi í síðuna. Fljótlega áttaði hann sig á því að hann hafði fengið viskípela, sem hann taldi vera úr gleri, í síðuna frá manninum. Í yfirheyrslum lögreglu viðurkenndi maðurinn að hafa kastað pelanum í tjaldvörðinn. Hann taldi að pelinn hefði ekki brotnað í kastinu þar sem hann hefði samkvæmt minni ákærða verið úr plasti. Er honum var kynnt fyrirliggjandi læknisvottorð vegna áverkanna á kæranda sagði hann: „Ég er ekki skotfastur og trúi þessu ekki. Ég segi að það er ekki séns að hafa veitt honum þessa áverka. Hann hefur slasað sig einhvern veginn öðruvísi þessi." Samkvæmt sakaskrá mannsins hafði hann verið sviptur ökuréttindum í einn mánuð árið 2007 fyrir hraðakstur. Með dómi í nóvember 2008 var manninum gert að greiða 120.000 króna sekt og sæta sviptingu ökuréttar í 5 mánuði fyrir að aka bifreið óhæfur til að stjórna henni „örugglega vegna áhrifa ávana- og fíkniefna. Brot þau sem ákærði hefur nú verið sakfelldur fyrir voru framin fyrir uppkvaðningu þess dóms. Refsing hans var því ákvörðuð sem hegningarauki við þann dóm með vísan til 78. gr. almennra hegningarlaga. Maðurinn var dæmdur í 60 daga fangelsi, en fresta skal fullnustu refsingar og hún niður falla að 2 árum liðnum haldi ákærði almennt skilorð. Þá var honum einnig gert að greiða fórnarlambinu 220.000 krónur.
Mest lesið Erfiðast að horfa upp á manneskju deyja og geta ekkert gert Innlent Húsið að Mosfelli tekið í gegn og biskup flytur inn Innlent Hyggst kanna hug íbúa til áforma í Finnafirði Innlent Lést í kjölfar krabbameinsgreiningar Erlent „Þetta er ekki saklaus könnunarleiðangur“ Innlent Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Innlent Fyrstu viðbrögð við tölum úr nýjustu könnun Maskínu Innlent Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Innlent Móðirin sem Bandaríkjamenn deila um Erlent „Það verður ekki þjónusturof við þessar breytingar“ Innlent Fleiri fréttir Stútur „með allt í skrúfunni“ Húsið að Mosfelli tekið í gegn og biskup flytur inn Þyrluútköllum fjölgað verulega milli ára Hyggst kanna hug íbúa til áforma í Finnafirði Erfiðast að horfa upp á manneskju deyja og geta ekkert gert „Þetta er ekki saklaus könnunarleiðangur“ „Það verður ekki þjónusturof við þessar breytingar“ Fjörutíu og eitt þúsund þegar greitt atkvæði „Það er ekkert við þetta mannúðlegt“ Gagnrýna vinnubrögð meirihlutans: „Allt stefnir í hryllilegt haust” Kvöldfréttir: Hildur og Pétur mætast í beinni um uppsagnir Fyrsta háskólasamstæða landsins tekin til starfa Íslendingar voru alræmdir og lítið traust á milli Hætta að keyra fjarskiptastaði með ljósavélum Staðfesta tæplega níutíu uppsagnir Fyrstu viðbrögð við tölum úr nýjustu könnun Maskínu „Það var gott að ná þessu fyrir nóttina“ Ný könnun: Dregur saman milli fylkinga Biðla til pysjubjörgunarfólks að fara varlega „Þetta er erfiður dagur og ferlinu er ekki lokið“ Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Aukið umferðareftirlit nú þegar skólarnir eru komnir í gang Ný Maskínukönnun frumsýnd í Pallborði Aukafundur um uppsagnir í borginni og vendingar í minkamáli Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Bjarga þúsundum pysja í Eyjum Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Hundrað skjálfta hrina við Eldey Sjá meira