Hleypur í þágu daufblindra 25. apríl 2009 04:00 Ólafur hleypur London-maraþonið á morgun. „
Mig hefur lengi langað til þess að hlaupa heilt maraþon, en aldrei tekið mig til og látið verða af því,“ segir Ólafur Haukur Johnson, 25 ára, sem mun hlaupa London-maraþonið á morgun. Ólafur safnaði áheitum í gegnum heimasíðuna justgiving.com og hefur nú safnað 1.000 pundum af 1.500 sem munu öll renna til samtakanna Sense sem styðja við daufblint fólk og fjölskyldur þeirra. „Eitt af áramótaheitunum mínum 2007-2008 var að skrá mig í London-maraþonið og finna gott góðgerðarstarf til að styrkja. Ég hef lengi hlaupið reglulega, en æfingar hófust af alvöru í byrjun janúar á þessu ári. Síðan þá hef ég hlaupið tæplega 450 kílómetra ásamt James Hay félaga mínum og við höfum haft það að markmiði að hlaupa fimm til sex sinnum í viku. James tekur líka þátt í hlaupinu en er ekki að hlaupa fyrir góðgerðarmál heldur til að snúa við fimm árum af Londonlífsstíl,“ segir Ólafur sem starfar nú hjá ráðgjafafyrirtæki í London, en heldur til Bandaríkjanna í haust þar sem hann fer í MBA-nám við Harvard Business School í Boston. Aðspurður segist hann hafa velt fyrir sér ýmsum góðgerðarsamtökum. „En eftir að ég átti gott spjall við Micol hjá Sense hljóp ég í tveim hlaupum fyrir þau á seinasta ári, meðal annars í jólasveinabúningi. Þá sá ég hversu gríðarlega gott og óeigingjarnt starf fer fram hjá Sense, en markmið þeirra er að búa til samfélög fyrir daufblinda þar sem þeir geta lifað, unnið og skemmt sér.“ Áheitasíða Ólafs Hauks er á justgiving.com/olijohnson.“ - ag
Mest lesið Eins og að vera með kláða sem hverfur aldrei Lífið „Erum enn að ná utan um allt sem gerðist“ Lífið Taylor Swift og Travis Kelce eru gift Lífið „Þegar þið eignist ykkar fyrsta barn, má ég þá fá það?“ Lífið Fréttatía vikunnar: EBU, aftaka og Love Island Lífið Allir og amma þeirra á Ítalíu Lífið Kyssti ekki Maguire heldur tottaði rafrettu Lífið „Klukkan er fimm einhvers staðar“ Lífið Snæddi með furstanum af Mónakó Lífið Landslið íslenskra söngvara syngur afmælislag Bylgjunnar Tónlist Fleiri fréttir Taylor Swift og Travis Kelce eru gift Eins og að vera með kláða sem hverfur aldrei „Erum enn að ná utan um allt sem gerðist“ Fréttatía vikunnar: EBU, aftaka og Love Island „Klukkan er fimm einhvers staðar“ „Þegar þið eignist ykkar fyrsta barn, má ég þá fá það?“ Snæddi með furstanum af Mónakó Kyssti ekki Maguire heldur tottaði rafrettu Allir og amma þeirra á Ítalíu Brúðkaupshátíð Taylor Swift og Travis Kelce hafin Bubbi, Herra og þeir allra rauðhærðustu á Írskum dögum Helga Þóra og Óli Sig ástfangin á Grikklandi Muniz skilinn Tveggja ára dóttir Nöru Smith með krabbamein Hvað veistu um… götur í Reykjavík sem byrja á S? „Mér var sagt að segja ekki eitt fokking orð“ Weinstein á spítala eftir hjartabilun Segir Depp hafa sturlast úr afbrýðissemi Kanada tekur þátt í Eurovision Erna Mist og Þorleifur Örn eignuðust son Leikarapar selur í 101 Grætti nánast alla í athöfninni „Fór fram úr mínum ýktustu björtustu vonum“ Logi fór á skeljarnar við Como-vatn Endaði einn í Færeyjum í sögulegri steggjun Mormónastjarna kemur út úr skápnum Fann ástina og tók sénsinn í New York Lést af völdum alnæmis Alþjóðlegi drullumallsdagurinn: „Við viljum ekki fara heim af því að það er svo skemmtilegt“ Fjarlægður úr Love Island vegna tengsla sinna við stunguárás Sjá meira