Innlent

Stálu verðmætum ferðamanna

Innbrotstilraun var gerð í austurhluta Reykjavíkurborgar í morgun en íbúar hússins vöknuðu við lætin og hröktu þjófanna á brot áður en þeir komust inn. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni.

Þá segir frá pari sem var handtekið í austurborgini en það hafði brotist inn á gistiheimili og stolið munum í eigu ferðamanna. Þýfið fannst og hefur verið komið til skila. Parið er vel þekkt hjá lögreglu vegna afbrota.

Þá var brotist inn í tvær bifreiðar í Kópavogi í dag og þaðana stolið staðsetningartækjum. Eigendur bifreiða eru beðnir um að skilja ekki eftir lausamuni í bifreiðum sínum, en þjófar sækja víst mjög í slík verðmæti.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×