Lífið

Grétar Örvarsson farastjóri Kollywood-tökuliðsins

Grétar Örvarsson tónlistarmaður.
Grétar Örvarsson tónlistarmaður.

„Ég er að ganga frá á tökustað og við erum bara að færa okkur yfir á þann næsta. Sem er Jökulsárlón,“ segir Grétar Örvarsson, tónlistamaður með meiru en hann er farastjóri Kollywood-tökuliðsins sem Fréttablaðið greindi frá að væri á leiðinni til landsins. Fyrirtækið Jöklar ehf tók tökuliðið uppá sína arma. Og fengu Grétar til að vera sér innan handar.

Verkefnisstjóri Jökla ehf, Elísabet Agnarsdóttir, upplýsir að indverski sendiherrann á Íslandi hafi lagt hart að fyrirtækinu að taka kvikmyndagerðarfólkið frá Indlandi uppá sína arma en Jöklar ehf og sendiráðið eru á sama fermetranum á Skúlagötu.

Eins og Fréttablaðið greindi frá eru þetta engar smástjörnur á indverskan mælikvarða sem staddar eru hér á landi.

Leikstjórinn heitir Ravikumar og er feykilega virtur í sínu heimalandi, aðalleikararnir tveir eru þau Suriya og Nayanthara, sannkallaðar stórstjörnur heima fyrir. Tökuliðið hefur farið ansi víða á þeim stutta tíma sem það hefur dvalist hér á landi; Reykjavík, Hengilssvæðið, Seljalandsfoss, Hjörleifshöfði og Bláa lónið, svo fátt eitt sé nefnt.

Elísabet segir þetta vera mikla vinnuþjarka, tökur hefjist klukkan fimm á morgnana og unnið sé nánast sleitulaust til klukkan tíu og ellefu á kvöldin. Verið sé að taka upp tónlistaratriði sem eru nánast skylda í kvikmyndum frá þessum heimshluta. „Þeir setja ekki miklar kröfur, engin lúxushótel eða sérsvítur. Þeir sætta sig meira að segja við að deila herbergi þótt einhverjir séu milljarðarmæringar og aðrir ekki. Og fannst til að mynda bara notalegt að vera á bændagistingunni á Vík,“ segir Elísabet.

Hún bætir því við að fjórir til fimm indverskir kvikmyndagerðarmenn séu áhugasamir um að koma hingað til Íslands í haust til að taka upp atriði fyrir kvikmyndir sínar og slíkt gæti reynst gulls ígildi. „Þetta gæti haft mikil áhrif á ferðamannastrauminn frá Indlandi, menn hafa fundið fyrir auknum áhuga frá Indlandi í Sviss eftir indverskir kvikmyndagerðarmenn tóku upp nokkur atriði þar,“ segir Elísabet. Tökuliðið heldur af landi brott á sunnudaginn.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.