Grétar Örvarsson farastjóri Kollywood-tökuliðsins 20. júní 2009 04:00 Grétar Örvarsson tónlistarmaður. „
Ég er að ganga frá á tökustað og við erum bara að færa okkur yfir á þann næsta. Sem er Jökulsárlón,“ segir Grétar Örvarsson, tónlistamaður með meiru en hann er farastjóri Kollywood-tökuliðsins sem Fréttablaðið greindi frá að væri á leiðinni til landsins. Fyrirtækið Jöklar ehf tók tökuliðið uppá sína arma. Og fengu Grétar til að vera sér innan handar. Verkefnisstjóri Jökla ehf, Elísabet Agnarsdóttir, upplýsir að indverski sendiherrann á Íslandi hafi lagt hart að fyrirtækinu að taka kvikmyndagerðarfólkið frá Indlandi uppá sína arma en Jöklar ehf og sendiráðið eru á sama fermetranum á Skúlagötu. Eins og Fréttablaðið greindi frá eru þetta engar smástjörnur á indverskan mælikvarða sem staddar eru hér á landi. Leikstjórinn heitir Ravikumar og er feykilega virtur í sínu heimalandi, aðalleikararnir tveir eru þau Suriya og Nayanthara, sannkallaðar stórstjörnur heima fyrir. Tökuliðið hefur farið ansi víða á þeim stutta tíma sem það hefur dvalist hér á landi; Reykjavík, Hengilssvæðið, Seljalandsfoss, Hjörleifshöfði og Bláa lónið, svo fátt eitt sé nefnt. Elísabet segir þetta vera mikla vinnuþjarka, tökur hefjist klukkan fimm á morgnana og unnið sé nánast sleitulaust til klukkan tíu og ellefu á kvöldin. Verið sé að taka upp tónlistaratriði sem eru nánast skylda í kvikmyndum frá þessum heimshluta. „Þeir setja ekki miklar kröfur, engin lúxushótel eða sérsvítur. Þeir sætta sig meira að segja við að deila herbergi þótt einhverjir séu milljarðarmæringar og aðrir ekki. Og fannst til að mynda bara notalegt að vera á bændagistingunni á Vík,“ segir Elísabet. Hún bætir því við að fjórir til fimm indverskir kvikmyndagerðarmenn séu áhugasamir um að koma hingað til Íslands í haust til að taka upp atriði fyrir kvikmyndir sínar og slíkt gæti reynst gulls ígildi. „Þetta gæti haft mikil áhrif á ferðamannastrauminn frá Indlandi, menn hafa fundið fyrir auknum áhuga frá Indlandi í Sviss eftir indverskir kvikmyndagerðarmenn tóku upp nokkur atriði þar,“ segir Elísabet. Tökuliðið heldur af landi brott á sunnudaginn.
Mest lesið Nicole er fyrir norðan Lífið Galvaskt gelludjamm hjá Guggu og guggunum Lífið Stórglæsilegt Sigvaldahús á sölu Lífið Leikkonan var úrskurðuð látin á vettvangi Lífið Hvað veistu um... frjálsar íþróttir? Lífið Bestu hlutverk Hayden Panettiere Bíó og sjónvarp Barnalán hjá Brynju Dan Lífið Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Lífið Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Lífið Herra og frú Crivello hamingjusöm hjón Lífið Fleiri fréttir Stórglæsilegt Sigvaldahús á sölu Leikkonan var úrskurðuð látin á vettvangi Hvað veistu um... frjálsar íþróttir? Galvaskt gelludjamm hjá Guggu og guggunum Nicole er fyrir norðan Egill Heiðar og Kittý selja Garðabæjarslotið Helstu samsæriskenningarnar um Evrópusambandið „Ein miðaldra kona að tala um að hún hefði viljað mæta“ Barnalán hjá Brynju Dan Herra og frú Crivello hamingjusöm hjón Svana á tímamótum og selur slotið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Leikkonan Hayden Panettiere er látin Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Þórdís Elva er gengin út Efna til söfnunar í minningu Hennings Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Krakkatía vikunnar: Tinni, flekar og stór augu Þórdís Kolbrún fékk hlýjar móttökur Adam Driver mættur í Marvel-heiminn Fréttatía vikunnar: Björk, Usher og peningaþvætti Barbie-framhald í uppnámi vegna launakrafa Robbie Williams einhverfur Hálfsextugur Hamm að verða pabbi í fyrsta sinn Hjartnæm athöfn þegar Gunnar Þórðarson var jarðsunginn Dorrit sendir rabbínanum tóninn Berskjölduð og óttaslegin eftir skilnaðinn og framtíðin óráðin Sjá meira