Blaðamenn fjalli síður um viðkvæm mál 6. mars 2009 17:59 Elín Arnar ritstjóri Vikunnar
Elín Arnar ritstjóri Vikunnar og Björk Eiðsdóttir blaðamaður segja niðurstöðu Hæstaréttir í meiðyrðarmáli sem féll í gær vera einstaka í hinum vestræna heimi. Jafnframt lýsa þær furðu sinni með dóminn en Hæstiréttur ómerkti ummæli viðmælanda blaðsins og blaðamanninum sem skráði viðtalið var gert að greiða hálfa milljón í miskabætur, auk dráttarvaxta og málskostnaðar. Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá þeim stöllum. Þar segir jafnframt að í dómi Hæstaréttar sé ekki véfangt að blaðamaðurinn hafi viðhaft fagleg vinnubrögð í alla staði við vinnslu greinarinnar, enda hafi viðtalið verið tekið upp á band og viðmælandinn samþykkt efni þess og birtingu. „Blaðamaðurinn viðhafði því augljóslega hárrétt og fagleg vinnubrögð, enda voru ummælin rétt eftir viðmælandanum höfð. Engu að síður taldi Hæstiréttur að blaðamaðurinn þyrfti að þola ómerkingu ummælanna og greiða miskabætur vegna þeirra. Blaðamaður segir í vitnaleiðslu í Héraðsdómi að hún sé höfundur greinarinnar, og á þá auðvitað við að hún hafi tekið viðtalið og skrifað greinina. Hæstiréttur túlkar þetta hins vegar á allt annan veg, þ.e. hvaða merkingu orðið „höfundur" hefur, og dæmir hana seka eftir því. Þó er staðfest í dómnum að viðtalið sé fagmannlega unnið á allan háttm" segir í yfirlýsingunni. Einnig segir í yfirlýsingunni að dómurinn breyti skýrri dómvenju um það að viðmælendur teljist höfundar ummæla sinna. Jafnframt hafa þær áhyggjur af því að dómurinn muni breyta verulega starfsumhverfi blaðamanna. „Með þessum dómi er Hæstiréttur í raun kveða upp úr með að blaðamenn séu ábyrgir fyrir öllu sem viðmælendur þeirra segja, þrátt fyrir að fyrir liggi hljóðupptaka af ummælum viðmælanda og samþykki viðmælanda fyrir birtingu þeirra. Dómurinn skilur blaðamenn eftir í mun meiri réttaróvissu en áður, hvað varðar heimildir þeirra til að taka við og miðla upplýsingum og hugmyndum, sem er hornsteinn sérhvers lýðræðisríkis. Dómur þessi mun enda hafa mun meiri áhrif en eingöngu í þessu tiltekna máli." Þá segja þær að ein óhjákvæmileg afleiðing niðurstöðu Hæstaréttar sé aðf ólk í erfiðri stöðu hætti að þora að koma opinberlega fram og blaðamenn hætti að þora aðf jalla um viðkvæm mál þar sem þeir verða taldir persónulega ábyrgir fyrir ummælum annarra. „Dómur Hæstiréttar byggir prentlögum frá 1956, þar sem fram kemur að höfundur sé ábyrgur fyrir ummælum sínum. Eftir dóm Hæstaréttar í gær verður að telja að blaðamaður sé ávallt höfundur. Slík niðurstaða er í andstöðu við bæði íslensk stjórnarskrárákvæði um að hver maður verði að ábyrgjast hugsanir sínar fyrir dómi, og einnig erlend lög um sama efni. Samkvæmt dönskum fjölmiðlalögum ber hver höfundur ábyrgð á sínum þætti. Má því telja niðurstöðu Hæstaréttar í máli blaðmannsins einstaka í hinum vestræna heimi."
Mest lesið Selja sinn sögufrægasta grip til að lifa af sumarið Innlent Segir Íran hafa farið yfir strikið Erlent Fregnir af eldsvoða á flugvelli í Teheran Erlent Sofnaði undir stýri og svipt bílprófinu í hálft ár Innlent Benz brann í Breiðholti Innlent Vilja milljarð frá First Water sem hafnar vanefndum Innlent Minnihlutinn mætir ekki á morgun Innlent Þórdís kemur Þorgerði til varnar: „Birtingarmynd pólitískra öfga“ Innlent Íranir hefna sín og eldflaugar fljúga í Tel Aviv Erlent Sprengjum og öxum beitt við heimili til að kúga út fé Innlent Fleiri fréttir Selja sinn sögufrægasta grip til að lifa af sumarið Sofnaði undir stýri og svipt bílprófinu í hálft ár Benz brann í Breiðholti Minnihlutinn mætir ekki á morgun Vilja milljarð frá First Water sem hafnar vanefndum Allt á suðupunkti á Alþingi, árásir í Íran og fágætur flygill Selma nýr skólameistari á Króknum Hafa enga hugmynd hve lengi segulómstækið verður ónothæft Þórdís kemur Þorgerði til varnar: „Birtingarmynd pólitískra öfga“ Skúringatæki pikkfast utan á eina segulómtækinu á Hringbraut Stofnandi Viðreisnar segir Daða seilast í vasa almennings Burðardýr með þrettán kíló í farangrinum hlaut þungan dóm Sverrir Jónsson ráðinn skrifstofustjóri Alþingis Þyrlan afturkölluð og hinn slasaði sóttur á björgunarskipi Draga úr framkvæmdum um meira en fjórðung vegna rekstrarstöðvunar PCC Kæra utanríkisráðherra fyrir landráð Segja skellt á Skattinn og að „ofbeldi“ viðgangist í nefndinni „Kanntu ekki að skammast þín?“ Hrósaði meirihlutanum og sendi þeim gamla pillu Árásir á Íran og átök á Alþingi Lögðu hald á töluvert magn fíkniefna og milljónir í reiðufé Ísland fyrsta landið til að dreifa Naloxone í öll fangelsi Segir reikninginn ekki enda hjá eldri borgurum Nemandinn sem stakk Ingunni nítján sinnum: Segir „tæknilega séð mögulegt“ að hann geri það aftur Kínverskur dómur um banaslys skipti engu máli og TM slapp Landlæknir vísar málflutningi Kalla Snæ á bug Þingmenn stjórnarandstöðu ræddu bókun 35 í nærri hálfan sólarhring Tilkynnt um barn með vopn og vímuefni Jón Óttar kærir Ólaf Þór fyrir rangar sakargiftir Gömlum Flugfélagsþristi bætt við á Sólheimasand Sjá meira