Innlent

Deilt um afstöðu lögspekinga í fjárlaganefnd

Höskuldur Þórhallsson.
Höskuldur Þórhallsson.

Höskuldur Þórhallsson nefndarmaður í fjárlaganefnd segist hafa aðra upplifun af þeim fundi sem haldinn var í fjárlaganefnd í dag þegar fjórir lögfræðingar voru kallaðir fyrir nefndina til að leggja mat sitt á hvort fyrirhugað frumvarp um Icesave stangist á við stjórnarskrá.

Að mati Höskuldar er alls ekki hægt að segja að þrír af lögfræðingunum hafi verið samdóma í því áliti að frumvarpið stangist ekki á við stjórnarskrá. Sigurður Líndal hefur áður sagt það álitamál en ásamt honum mættu fyrir nefndina þau Eiríkur Tómasson, Björg Thorarensen og Ragnhildur Helgadóttir.

„Í fyrsta lagi ákveður Guðbjartur sjálfur að kalla þessa fjóra lögfræðinga fyrir nefndina án þess að ræða það við aðra nefndarmenn," segir Höskuldur.

„Tveir af þessum fjórum voru þeir lögfræðingar sem veittu ráðgjöf við breytingu á lögunum frá því í lok ágúst, þau Eiríkur og Björg. Þau hefðu væntanlega ekki veitt þá ráðgjöf hefðu þau talið að hún færi í bága við stjórnarskránna og því má segja að þeirra afstaða hafi legið fyrir. Eiríkur lýsti því reyndar yfir að hann hefði fengið örstuttan tíma til þess að fara yfir málið en að eftir þá yfirferð mæti hann það ekki þannig að þetta færi í bága við stjórnarskrá." Höskuldur segir hinsvegar að ekki hafi komið skýrt fram af hálfu hinna, það er að segja Bjargar og Ragnhildar, að þeirra skoðun væru sú sama.

„Ég kallaði eftir því í ljósi þess að Sigurður Líndal treysti sér einn til að leggja fram skriflega álitsgerð að samskonar álit kæmi frá hinum lögmönnunum þannig að stjórnmálamennirnir færu ekki að túlka orð þeirra í sína hvora áttina," segir Höskuldur. „Á meðan það er ekkert skriflegt frá hinum lögfræðingunum er afar erfitt að fullyrða að þrír af fjórum hafi komist að samdóma niðurstöðu eins og Guðbjartur gerir," segir hann að lokum.






Tengdar fréttir

Lögspekingar telja Icesave frumvarpið ekki stangast á við stjórnaskrá

Þrír af þeim fjórum lögspekingum sem kallaðir voru fyrir fjárlaganefnd í dag til þess að ræða hvort fyrirhuguð lög um ríkisábyrgð vegna Icesave samningana standist stjórnarskrá eru á því að svo sé ekki. Sá fimmti telur að þessa spurningu þurfi að kanna frekar.

Fjárlaganefnd: Lögspekingar ræða Icesave og stjórnarskrá

Nokkrir af virtustu lögfræðingum landsins hafa verið boðaðir á fund fjárlaganefndar í hádeginu í dag. Kallað hefur verið eftir áliti þeirra á því hvort fyrirliggjandi frumvarp um ríkisábyrgð í Icesave málinu standist stjórnarskrána. Á meðal gesta nefndarinnar í dag er Sigurður Líndal prófessor sem á dögunum skrifaði grein í Fréttablaðið þar sem vakin er athygli á því hve lítil umræða hafi farið fram um Icesave með tilliti til stjórnarskráarinnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×