Fóru á kostum í íslenska sendiráðinu í Moskvu 11. maí 2009 06:30 Látum sönginn óma Jóhanna Guðrún söng að sjálfsögðu Eurovision-lagið sitt, Is it True?, við góðar undirtektir viðstaddra.
Íslenska Eurovision-föruneytið heldur áfram að heilla íbúa Moskvuborgar uppúr skónum með framkomu sinni. Á föstudagskvöldið var hópurinn þó á kunnuglegum slóðum. Jóhanna Guðrún og félagar hafa tekið Eurovision-keppnina með trompi og Eurovision-spekúlantar eru flestir sammála um að það væri stórslys ef það kæmist ekki uppúr sínum undanriðli á þriðjudagskvöldinu. Hópurinn sletti aðeins úr klaufunum hjá íslenska sendiherranum í Moskvu, Benedikt Ásgeirssyni, og tók að sjálfsögðu lagið fyrir starfsmenn sendiráðsins. Einna mestu kátínuna vakti þegar Jóhanna Guðrún fetaði í fótspor Regínu Ósk og söng hin ofurvinsæla Eurovision-slagara This is your life með Friðrik Ómari. Annars getur ýmislegt gerst og sem betur fer var engin Íslendinganna nærri þegar gasleiðsla sprakk í nágrenni við Eurovision-svæðið aðfaranótt sunnudags. Hún heyrðist víða enda um töluvert öfluga sprengingu að ræða en samkvæmt fyrstu fréttum virðist engin hafa slasast þótt eldar hafi geisað í kjölfar hennar. Jóhanna Guðrún stígur síðan á stóra sviðið annað kvöld og þá verða örlög hennar í höndum annarra Evrópubúa og sérstakrar dómnefndar. -fgg This is my life Og Jóhanna þandi raddböndin þetta kvöld því hún söng einnig með Friðrik Ómari hið geysivinsæla lag Eurobandsins, This is my Life. Gott að borða Eurovision-hópurinn var ánægður með að geta loks fengið sér almennilega að borða en rússneski maturinn hefur mælst misvel fyrir. Jóhanna, María Björk og Börkur Birgisson gæddu sér á veitungunum. Brjálaður aðdáandi Þessi þýski Eurovision-aðdáandi lét sig ekki muna um það að láta húðflúra merki keppninnar á bakið á sér. Óskar Páll virðist hafa gaman af. Allt gengið stóráfallalaust Þær Jóhanna Guðrún og María Björk eru ánægðar með hvernig gengið hefur í Moskvu. Leynivopnin Tina Japaridze og Chris Neil eru óneitanlega góð leynivopn til að hafa uppí erminni þegar nær dregur. Milli þeirra stendur Erna Hrönn, bakraddarsöngkona. Fréttablaðið/Alma
Mest lesið Mig langaði til að öskra: „Ég skal segja allt af létta!“ Gagnrýni Harbour rýfur þögnina Bíó og sjónvarp Hvað veistu um… árið 2010? Lífið „Það má herma“ Tíska og hönnun Swae Lee heldur tónleika á Íslandi Tónlist Lífseigustu mýturnar um offitu: „Það er ekki sjúkdómur að fitna“ Lífið Hefur þegar fengið starfstilboð Lífið Guðrún Ýr og Birnir í eina sæng Tónlist „Ég var löngu tilbúin að giftast honum“ Lífið Skandinavíska merkið Ninepine komið til Lín Design Lífið samstarf Fleiri fréttir Hefur þegar fengið starfstilboð Hvað veistu um… árið 2010? Lífseigustu mýturnar um offitu: „Það er ekki sjúkdómur að fitna“ Sjö heitustu brúðkaupstrendin í sumar „Ég var löngu tilbúin að giftast honum“ Rassaumhirða karla í sókn Leggja áherslu á liti, gleði og glimmer Segir Weinstein hafa bannað sér að vera lesbía Hætt saman en ennþá vinir Varð ástfanginn á sama tíma og móðir hans kvaddi Lára Clausen lýsir eftir stolnum Mustang Blendnar tilfinningar að fara á vinnumarkað á ný Lofuðu svörtu fólki lækningu en blekktu það til dauða „Ég passaði mig sérstaklega á því að tala ekki um Evrópusambandið“ Vigdís Häsler og Sveinn Andri gengu í hnapphelduna Huggulegustu hommar landsins „loksins“ giftir Adam Páls fann ástina í örmum Moniku Stjörnulífið: Rapparar ástfangnir upp fyrir haus Myndaveisla: Líf og fjör úti á Granda Hringdi strax í pabba og sagði honum frá Bond-leiknum Krakkatía vikunnar: Jónas, þjóðardýr og einmanalegt áhugamál Verður yngsta skvettan í þingflokki Sjálfstæðismanna Vesturbæingar kvöddu sögufræga bensínstöð Allt að verða klárt fyrir Sjómannadaginn í Reykjavík Allir og amma þeirra senda kónginum afmæliskveðju Fann ástina á Tinder og endaði í Texas Þegar tónlistin heltók lögmanninn Fréttatía vikunnar: Dua, Danir og Carpenter Anthony Head er látinn Emilíana Torrini selur einbýlishús á 250 milljónir Sjá meira