Vilja jafnt kynjahlutfall í stjórnum fyrirtækja 20. janúar 2009 10:57 Steinunn Valdís Óskarsdóttir er fyrsti flutningsmaður frumvarpsins en meðflutningsmenn eru Guðbjartur Hannesson, Ásta R. Jóhannesdóttir og Ellert B. Schram.
Frumvarp fjögurra þingmanna Samfylkingarinnar um jafnt hlut kynjanna í stjórnunar- og áhrifastöðum fjármálafyrirtækja verður tekið til fyrstu umræðu í dag þegar Alþingi kemur saman að nýju eftir jólaleyfi. Frumvarpið sem var lagt fyrir í lok október á seinasta ári felur í sér að við stjórnarkjör skal tryggt að í stjórnum skuli sitji sem næst jafnmargar konur og karlar. Í ræðu Jóhönnu Sigurðardóttur, félagsmálaráðherra, á jafnréttisþingi í seinustu viku kom fram að hún telur að of hægt hafi miðað varðandi ráðningu kvenna í stjórnunarstöður hjá hinu opinbera og í atvinnurekstri og stjórn fyrirtækja. Jóhanna vill skoða af mikilli alvöru hvort stjórnvöld geti tekið fastar á málum og beitt róttækari aðgerðum. Lagasetning skilaði ágætum árangri í Noregi ,,Atburðir síðustu vikna hafa sýnt að þörf er á nýrri nálgun og nýrri hugsun í stjórnun fjármálafyrirtækja hér á landi. Lengi hefur verið rætt um lögfestingu á jöfnun kynjahlutfalls í stjórnun fjármálafyrirtækja og um það verið skiptar skoðanir. Aðrar þjóðir, t.d. Norðmenn, hafa farið þá leið að lögfesta hlutfallið til að tryggja jafnræði kynja í stjórnum fjármálafyrirtækja," segir í greinargerð með frumvarpinu. Á undanförnum árum hafi verið unnið að því að jafna kynjahlutföll í stjórnum opinberra hlutafélaga. Í greinargerðinni segir einnig að í nýlegum lögum um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla að við skipun í nefndir og stjórnir á vegum ríkis og sveitarfélaga skuli þess gætt að hlutfall kynjanna sé sem jafnast og ekki minna en 40% þegar um fleiri en þrjá fulltrúa er að ræða. Reglan eigi við um öll fjármálafyrirtæki Þingmennirnir telja nú þegar stærstu bankar landsins verða í aðaleigu ríkisins sé eðlilegt að reglan eigi við um öll fjármálafyrirtæki í landinu. ,,Ljóst er að fram til þessa hafa konur ekki átt greiðan aðgang að stjórnum banka eða fjármálafyrirtækja. Er það miður, ekki síst þar sem rannsóknir hafa sýnt fram á fjárhagslegan ávinning fyrirtækja af því að auka hlutfall kvenna í stjórnum. Hið sama á reyndar við um stjórnunarstöður og hlutdeild kvenna þar," segir í greingargerðinni. Steinunn Valdís Óskarsdóttir er fyrsti flutningsmaður frumvarpsins en meðflutningsmenn eru Guðbjartur Hannesson, Ásta R. Jóhannesdóttir og Ellert B. Schram.
Mest lesið „Mér finnst þetta mjög vel gert hjá henni“ Innlent Viðbrögð Mancel við dómsuppkvaðningu komi ekki á óvart Innlent Umfangsmiklar götulokanir í kringum almyrkva Innlent Drjúgdjúpt að kafa eftir gullkistunni í Kattarauga Innlent Hátt hlutfall karlmanna á tvítugsaldri á bótum Innlent Fólk megi lesa í ræðuna umtöluðu eins og það vilji Innlent Johnson & Johnson greiðir 693 milljarða króna vegna málsókna Erlent Vilja fá ókeypis aðgang að gommu af höfundarvörðu efni Innlent Ming Ting dæmd í tólf ára fangelsi Innlent Mjólkurhvít mengun í Sauðá Innlent Fleiri fréttir „Mér finnst þetta mjög vel gert hjá henni“ Drjúgdjúpt að kafa eftir gullkistunni í Kattarauga Viðbrögð Mancel við dómsuppkvaðningu komi ekki á óvart Umfangsmiklar götulokanir í kringum almyrkva Mjólkurhvít mengun í Sauðá Skelfur við Landmannalaugar Vonbrigði, götulokanir í almyrkva og handbolta-hástökkvari Fara fram á varðhald á grundvelli almannahagsmuna Hélt að þrettán manns hefðu séð lykilorðið hennar Með áfallastreituröskun eftir hópárás á Austurvelli Slökkti sjálfur eldinn Fólk megi lesa í ræðuna umtöluðu eins og það vilji Vilja fá ókeypis aðgang að gommu af höfundarvörðu efni Ætlar að áfrýja dómnum Ming Ting dæmd í tólf ára fangelsi Fluttur með þyrlunni eftir vinnuslys Meirihluti aðildarfyrirtækjanna andvígur Saka Kristján um að beita Landhelgisgæslunni fyrir sig Hátt í þúsund atkvæði komin: Margfalt fleiri mættu á fyrsta degi Kannast ekki við afskipti af Bandero og uppkvaðning í Edition málinu Stórslysaleg fyrsta upplifun af landinu Hátt hlutfall karlmanna á tvítugsaldri á bótum Enn skelfur í Bárðarbungu Rafmagnslaust í Breiðholti í um klukkustund Kölluðu til Bandero en fengu ekkert svar „Þetta eru hreinlega loftslagsbreytingar“ Senda norðlenskt rusl úr landi Umfangsmestu rýmingar frá seinni heimsstyrjöldinni: „Tunglið var orðið appelsínugult“ Verst frétta um hvað felst nákvæmlega í fyrirhuguðum niðurskurði Stjórnlausir skógareldar og vertar sem fagna Sjá meira