Jónas sat með Baldri á samráðsfundunum 18. desember 2009 06:00
Jónas Fr. Jónsson, fyrrverandi forstjóri Fjármálaeftirlitsins (FME), nýtti ekki upplýsingar af fundum samráðshóps sem hann átti sæti í þegar embættið rannsakaði upphaflega meint innherjaviðskipti Baldurs Guðlaugssonar, fyrrverandi ráðuneytisstjóra. Fundargerðir hópsins uppgötvuðust eftir forstjóraskipti hjá FME og þóttu upplýsingarnar sem þar komu fram þá svo bitastæðar að ákveðið var að taka málið upp á ný. Fyrir dómi á þriðjudag var tekist á um þá kröfu Baldurs að rannsókn sérstaks saksóknara á máli hans yrði látin niður falla. Viðskiptablaðið greinir ítarlega frá málflutningnum í nýjasta tölublaði sínu. Meðal þess sem þar kemur fram er að endurupptaka málsins í júní hafi auk annars byggt á fundargerðum samráðshóps Seðlabankans um fjármálastöðugleika. Ábending hafði þá borist um að þær fundargerðir væru til hjá Seðlabankanum, en FME hafði fram að því ekki aðgang að þeim. Jónas Fr. Jónsson var forstjóri FME þegar rannsókn á máli Baldurs hófst. Hann átti hins vegar líka sæti í samráðshópi Seðlabankans, ásamt Baldri og öðrum embættismönnum, og sat samkvæmt heimildum Fréttablaðsins alla þá fundi sem skipta máli þegar mál Baldurs er annars vegar. Honum ætti því að hafa verið kunnugt um þær upplýsingar sem endurupptaka málsins byggði meðal annars á. Gunnar Andersen tók við sem forstjóri FME um vorið og það var hann sem ákvað að hætta rannsókninni á máli Baldurs. Fundargerðir samráðshópsins, og upplýsingarnar úr þeim, lágu þá hvergi fyrir hjá embættinu. Ekki náðist í Jónas Fr. Jónsson við vinnslu fréttarinnar.- sh /
Mest lesið Sérsveitin bregst við „alvarlegu atviki“ á Kársnesi Innlent Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Innlent Lögregluaðgerð á Laugavegi Innlent „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ Innlent Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Innlent Meintur byssumaður 21 árs góðkunningi leyniþjónustunnar Innlent „Hvað hafa þau að fela?“ Innlent „Aulalegasti bófinn í bænum“ Innlent Ofurhljóðfrárri eldflaug skotið að Úkraínu Erlent Enn öðru flugi aflýst Innlent Fleiri fréttir „Ekki í lífshættu“ Flugáætlun Icelandair hafi fallið á álagsprófi Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Sérsveitin bregst við „alvarlegu atviki“ á Kársnesi „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ „Hvað hafa þau að fela?“ Enn öðru flugi aflýst Lögregluaðgerð á Laugavegi Sprengisandur: Páll stýrir þéttpökkuðum þætti Meintur byssumaður 21 árs góðkunningi leyniþjónustunnar Skjálftahrina úti af Reykjanesi Maðurinn er fundinn „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns „Einhvers konar toppur á ísjakanum“ Tvö mál ráði úrslitum Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Almennur borgari veitti bílnum eftirför Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Flúðu eftir að hafa ekið á gangandi vegfaranda Tulsi Gabbard lætur af embætti Allt veltur á því hvort handaband teljist handsal Námsbækur barnanna búnar til „löngu áður en mamma og pabbi fæddust“ „Þetta hjól er næstum alltaf tómt“ Sjá meira