Putin hótar annarri gaslokun Óli Tynes skrifar 3. nóvember 2009 11:19
Í janúar síðastliðnum lokuðu Rússar í tvær vikur fyrir gasflutning til Evrópu um leiðslur sem liggja í gegnum Úkraínu. Rússar báru fyrir sig að Úkraínumenn hefðu ekki borgað sinn eigin gasreikning og það var einnig deilt um verð. Fréttaskýrendur sögðu hinsvegar að með þessu væru Rússar fyrst og fremst að reyna að berja þetta fyrrverandi Sovétlýðveldi til hlýðni. Leiðtogar þar þykja of hallir undir Vesturlönd. Þetta hafði alvarlegar afleiðingar fyrir yfir fimmtán Evrópuþjóðir sem þurftu að hafa allar klær úti til þess að verða sér úti um eldsneyti annarsstaðar frá. Það gekk ekkert alltof vel enda fær Evrópa yfir tuttugu prósent af gasi sínu frá Rússlandi. Það þurfti því að loka mörgum verksmiðjum tímabundið með tilheyrandi efnahagstjóni. Heimili urðu einnig illa úti þar sem gas er notað bæði til hitunar og matreiðslu. Vladimir Putin er nú aftur kominn af stað og hefur látið í ljós efasemdir um að Úkraína geti staðið við skuldbindingar sínar. Við það hefur kaldur hrollur farið um Evrópu. Ef Rússar loka aftur fyrir gasið getur það haft sérstaklega slæm áhrif í Úkraínu á þessum tímapunkti. Landið hefur farið sérlega illa út úr svínaflensufaraldrinum. Yfirvöld þar segja að yfir fimmþúsund manns hafi verið lagðir inn á sjúkrahús vegna hennar og sjúkrahús eru ekki síður háð gasi en aðrar stofnanir.
Mest lesið Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Innlent Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Erlent Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Erlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent „Hrokinn í þessum fjármálaráðherra er með þvílíkum ólíkindum“ Innlent Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Innlent Samtökin séu ekki í baráttu gegn einkabílnum Innlent Möguleg tengsl við heilabilun Innlent Rúmlega eitt og hálft ár fyrir ítrekaðan akstur undir áhrifum Innlent Sjálfstæðisflokkurinn tapar fylgi Innlent Fleiri fréttir Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Starship á sporbraut í fyrsta sinn Allir mennirnir breskir ríkisborgarar Spurði Xi hvort hann vildi kaupa bandarísk vopn Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Vilja formlega afsökun frá Selenskí Trump vill fleiri bensínháka á göturnar Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Aðeins samningaviðræður geti leyst deiluna Forseti Serbíu segir af sér í skugga mótmæla Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum Yfirgefa heimili sín og flykkjast í neyðarskýlin Sjá meira