Samkeppniseftirlitið fór inn í Fóðurblönduna 22. janúar 2009 14:02
Samkeppniseftirlitið gerði í morgun húsleit á skrifstofu Fóðurblöndunnar hf. í Reykjavík. Samkvæmt dómsúrskurði frá því í gær sem heimilaði húsleitina telur Samkeppniseftirlitið grun leika á að Fóðurblandan og Mjólkurfélag Reykjavíkur hafi viðhaft viðvarandi verðsamráð í andstöðu við samkeppnislög á fóðurmarkaði undanfarin þrjú ár. Einnig að Fóðurblandan ásamt öðrum keppinautum í áburðarsölu, þ.e. Sláturfélagi Suðurlands svf. og Skeljungi hf., hafi haft með sér verðsamráð á áburðarmarkaði síðastliðið ár. Í yfirlýsingu frá Eyjólfi Sigurðssyni, framkvæmdastjóra Fóðurblöndunnar, segist hann vísa báðum framangreindum ávirðingum á bug, en fagni því að Samkeppniseftirlitið leiti af sér allan grun um viðskiptahætti þeirra félaga sem um ræði. Fóðurblandan vænti þess að rannsókn málsins verði hraðað, svo félagið þurfi ekki að sitja undir meintum ávirðingum Samkeppniseftirlitsins um lengri tíma. Samkeppni á fóður- og áburðarmarkaði hafi verið mikil undanfarin ár og frekar vaxið en hitt. Markaðurinn sé hins vegar fákeppnimarkaður sem skili sér í einsleitum verðum þegar upp sé staðið, enda eru fyrirtæki á þessum mörkuðum að dæma sig út af markaðnum ef verð eru ekki samkeppnisfær.
Mest lesið Hoppandi reiðir vegna framgöngu Hallgríms í þætti um Davíð Innlent „Af hverju tekur þetta svona langan tíma?“ Innlent Vonbrigði ef ballið er búið á Hótel Flatey Innlent Auglýsir eftir einstaklingi sem angar af Dior-ilmvatni Innlent Fjögur látin í árekstri skólarútu og lestar Erlent Heiða greinir frá morðhótunum Innlent Valdimar kveður sáttur en segir síðustu daga krefjandi Innlent Nauðgaði konu sem hann hitti í körfubolta skömmu áður Innlent Feli í sér óásættanlega hættu og gefi tilefni til aflífunar Innlent Allt tiltækt lið kallað út vegna elds í rafhlaupahjóli innandyra Innlent Fleiri fréttir Heiða greinir frá morðhótunum Selja húsnæðið vegna andstöðu íbúa Komu vélarvana fiskibát til hjálpar Sátt um að klára ESB-umræðu í tæka tíð Sátt á þingi um þjóðaratkvæði og beðið eftir fréttum úr borginni Bein útsending: Borgarfulltrúar kveðja „Af hverju tekur þetta svona langan tíma?“ Afbókuðu hantaveiruskipið í maí en enn væntanlegt í ágúst Hoppandi reiðir vegna framgöngu Hallgríms í þætti um Davíð Hafi ekki hætt þrátt fyrir ítrekuð högg frá konunni Matvælastofnun kærir hótanir til lögreglu Valdimar kveður sáttur en segir síðustu daga krefjandi Allt tiltækt lið kallað út vegna elds í rafhlaupahjóli innandyra Vonbrigði ef ballið er búið á Hótel Flatey Feli í sér óásættanlega hættu og gefi tilefni til aflífunar Auglýsir eftir einstaklingi sem angar af Dior-ilmvatni Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og Samfylking mynda meirihluta í Hafnarfirði Framkvæmdum við Suðurlandsveg frestað Flutt á sjúkrahús með hraði vegna innvortis fíkniefnasmygls Lögðu hald á skotvopn og maður í gæsluvarðhald Nauðgaði konu sem hann hitti í körfubolta skömmu áður Jarðskjálfti við Bárðarbungu í nótt „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Sýknaður af nauðgun þótt konan þætti trúverðug Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum „Ekki í lífshættu“ Flugáætlun Icelandair hafi fallið á álagsprófi Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Sjá meira