Innlent

Uppgjöf meirihlutans á Álftanesi

Magnús Már Guðmundsson skrifar
Mynd/GVA
Tillaga meirihlutans á Álftanesi um að kalla til Eftirlitsnefnd sveitarfélaga er tillaga um uppgjöf, að mati bæjarfulltrúa minnihlutans.

Vegna fjárhagsvandræða hefur sveitarfélagið Álftanes óskað eftir aðkomu Eftirlitsnefndar með fjármálum sveitarfélaga. Það er mat meirihluta bæjarstjórnar bæjarfélagsins að verði ekkert að gert, eða gripið til viðeigandi ráðstafana varðandi fjármál bæjarsjóðs, muni stefna í verulegan greiðsluvanda hjá sveitarfélaginu.

„Þetta er ámælisvert og eflaust einsdæmi að pólitískur meirihluti leggi til að sveitarfélag afsali sér fjárforræði án þess að leita fyrst allra mögulegra úrlausna og án þess að eiga sjálf viðræður við ráðherra sveitarstjórnarmála," segir í tilkynningu frá þremur bæjarfulltrúum Á-listans.

Á-listinn fékk meirihluta í kosningunum 2006 og myndaði í kjölfarið meirihluta. Sá meirihluti liðaðist í sundur í sumar og í framhaldinu mynduðu bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins og einn bæjarfulltrúa sem kjörin var fyrir Á-listann, Margrét Jónsdóttur, nýjan meirihluta.

Bæjarfulltrúar Á-listans segja í yfirlýsingu sinni að Eftirlitsnefnd sveitarfélaga hafi vald til mögulegrar 25% hækkunar útsvars og fasteignagjalda á Álftnesinga og einnig vald til að setja í gang ferli sem leitt gæti til afnáms sjálfstæðs sveitarfélagsins.

„Forysta Á-lista ítrekar nauðsyn þess að Sjálfstæðisfélagið og Margrét Jónsdóttir láti af völdum og að bæjarstjórn allra bæjarfulltrúa taki við og vinni samstíga að lausn skammtíma fjárhagsvanda sveitarfélagsins og nái samningum um langtímalausn með viðræðum við ríkisvaldið án aðkomu Eftirlitsnefndarinnar," segir í yfirlýsingu bæjarfulltrúa Á-listans.


Tengdar fréttir

Álftanes óskar eftir aðstoð vegna fjárhagserfiðleika

Vegna fjárhagsvandræða hefur sveitarfélagið Álftanes óskað eftir aðkomu Eftirlitsnefndar með fjármálum sveitarfélaga. Það er mat meirihluta bæjarstjórnar Álftaness að verði ekkert að gert, eða gripið til viðeigandi ráðstafana varðandi fjármál bæjarsjóðs, muni stefna í verulegan greiðsluvanda hjá sveitarfélaginu.

Sundlaugin að kaffæra sveitarfélagið

Sveitarfélagið Álftanes þarf að óbreyttu að greiða meira en 200 milljónir króna í leigugreiðslur á næsta ári til Eignarhaldsfélagsins Fasteignar (EFS) vegna sundlaugar sem tekin var í notkun í sumar, að sögn Kristins Guðlaugssonar, forseta bæjarstjórnar.

Eiginfjárstöðu og gengishruni að kenna

Sigurður Magnússon, fyrrverandi bæjarstjóri á Álftanesi, segir að vegna veikrar eiginfjárstöðu sveitarfélagsins hafi hrunið á gengi krónunnar valdið meiri skaða á efnahag Álftaness en flestra annarra sveitarfélaga. Álftanes hefur nú óskað eftir aðstoð Eftirlitsnefndar um fjármál sveitarfélaga við að greiða úr miklum fjárhagsvanda.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×