Tónelskur þjófur stal harmonikku af Amiinu 25. apríl 2009 04:45 Amiina er á leið til London og spilar þar á tónleikum með Valgeiri Sigurðssyni og vonandi með Hohner-nikkuna í farteskinu. „
Við vorum búin að færa allar okkar græjur yfir á Grundarstíginn og vorum að æfa okkur fyrir tónleikaferð til London. Svo var bara brotist inn í húsnæðið um páskahelgina og rauðri harmónikku og rafmagnsfiðlu stolið,“ segir María Huld Markan Sigfúsdóttir, ein af liðsmönnum Amiinu. Hljómsveitin varð fyrir áfalli þegar tónelskur þjófur fór á kreik og lét greipar sópa í æfingahúsnæði sveitarinnar. María viðurkennir að góssið sem ræninginn hafði með sér á brott hafi ekki alveg verið í takt við það sem hún bjóst við, því allt í kringum hljóðfærin voru græjur sem auðveldlega hefði verið hægt að koma í verð. María upplýsir að fiðlan hafi komið fljótlega í leitirnar því glöggur vegfarandi kom auga á hana í blómabeði við Bergstaðastræti. María vonar því heitt og innilega að þjófurinn hafi fljótlega uppgötvað að hann hefði lítil not fyrir harmónikkuna og skilið hana eftir á svipuðum stað. „Mig langar því bara að biðja fólk sem nú er að fara í vorhreingerningar í görðunum sínum að hafa augun hjá sér og láta okkur vita ef það rekst á meðalstóra, sjötíubassa harmónikku.“ Þess ber að geta að fiðlunni varð ekki meint af blómabeðsblundinum sínum og María telur víst að harmónikkan ætti að geta komist klakklaust frá slíkri dvöl finnist hún fljótlega. Atvikið var tilkynnt strax til lögreglunnar sem nú fer með rannsókn málsins. María er þess þó fullviss að tónelski þjófurinn sjái að sér og skili hljóðfærinu. „Við erum alveg reiðubúnar til að greiða smá lausnargjald,“ segir María en Hohner-harmónikkan er síður en svo ódýr þótt tónlistarkonan vilji ekki gefa upp hvað hún kosti ný út úr búð. „Maður fer allavega ekki og kaupir sér nýja upp úr þurru,“ útskýrir María. Þær Amiinu-stelpur eru á fullu við að undirbúa tónleikaferðalag til London þar sem þær spila ásamt Valgeiri Sigurðssyni og Shlomo. Þær koma síðan fram á stofutónleikum á vegum Listahátíðar í Reykjavík en þeir tónleikar fara einmitt fram í æfingarhúsnæðinu við Grundarstíg þar sem músíkalski ræninginnn stóðst ekki freistinguna. freyrgigja@frettabladid.is
Mest lesið Sunneva Einars áfram langtekjuhæsti áhrifavaldurinn Lífið Tekjuhæstu listamennirnir árið 2025 Lífið Stórglæsilegt Sigvaldahús á sölu Lífið Nicole er fyrir norðan Lífið Hemma Gunn-stytta og heitur pottur í 192 milljóna króna raðhúsi Lífið Lofar að minnast Panettiere ávallt af virðingu Lífið Galvaskt gelludjamm hjá Guggu og guggunum Lífið Sannkallað stjörnubrúðkaup Katrínar Tönju og Brooks Lífið „Ógleymanlegt söngævintýri“ með Nicole Kidman Lífið Hvað veistu um... frjálsar íþróttir? Lífið Fleiri fréttir Sannkallað stjörnubrúðkaup Katrínar Tönju og Brooks Tekjuhæstu listamennirnir árið 2025 Sunneva Einars áfram langtekjuhæsti áhrifavaldurinn „Ógleymanlegt söngævintýri“ með Nicole Kidman Prjóna á klúbbnum án þess að prjóna yfir sig Hemma Gunn-stytta og heitur pottur í 192 milljóna króna raðhúsi Verjendur Davis segja ekkert að marka skjólstæðing sinn Lofar að minnast Panettiere ávallt af virðingu Stórglæsilegt Sigvaldahús á sölu Leikkonan var úrskurðuð látin á vettvangi Hvað veistu um... frjálsar íþróttir? Galvaskt gelludjamm hjá Guggu og guggunum Nicole er fyrir norðan Egill Heiðar og Kittý selja Garðabæjarslotið Helstu samsæriskenningarnar um Evrópusambandið „Ein miðaldra kona að tala um að hún hefði viljað mæta“ Barnalán hjá Brynju Dan Herra og frú Crivello hamingjusöm hjón Svana á tímamótum og selur slotið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Leikkonan Hayden Panettiere er látin Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Þórdís Elva er gengin út Efna til söfnunar í minningu Hennings Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Krakkatía vikunnar: Tinni, flekar og stór augu Þórdís Kolbrún fékk hlýjar móttökur Sjá meira