Fundar með fjármálaráðherrum í Istanbúl 3. október 2009 12:13
Fjármálaráðherra mun í dag og næstu daga eiga fundi með fjármálaráðherrum fjölmargra ríkja vegna efnahagserfiðleika Íslands á ársfundi Alþjóðagjaldeyrissjóðsins sem hófst í Istanbúl í Tyrklandi í dag. Formaður Sjálfstæðisflokksins segir Íslendinga ekki mega fórna framtíðarhagsmunum vegna pólitískra afarkosta Breta, Hollendinga og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins. Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra hélt til Istanbúl í gær ásamt hópi embættismanna úr fjármálaráðuneytinu og Seðlabankanum. Þar mun hann eiga fundi með starfsbræðrum sínum frá Hollandi og Bretlandi um Icesave og freista þess að ná niðurstöðu sem ríkisstjórnin treystir sér til að leggja fyrir Alþingi. En í gær sagði Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra að málið þyrfti óhjákvæmilega að koma aftur fyrir Alþingi, þótt málið væri ekki enn komið í þann búning að ríkisstjórnin treysti sér til að leggja málið fyrir þingið. Reikna má með að Steingrímur ýti á eftir því við stjórn Alþjóðagjaldeyrissjóðsins á fundinum í Istanbúl að endurskoðun sjóðsins á endurreisnaráætlun Íslands verði hraðað, en hún hefur dregist um átta mánuði vegna Icesave. Framkvæmdastjóri sjóðsins sagði á blaðamannafundi í gær að þjóðir heims ættu að vinna saman að lausn efnahagskreppunnar sem ekki væri liðin hjá. Bjarni Beneditksson formaður Sjálfstæðisflokksins sagði í gær að Íslendingar hefðu ekkert að gera með þetta samkomulag, ef Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn gæti ekki staðið undir hlutverki sínu gagnvart Íslandi.
Mest lesið Vaktin: Hildur valdi Viðreisn og Framsókn Innlent Íbúar miður sín og fuglalíf nær allt farið Innlent Reyndi að fá Miðflokk með og segir stöðu Ara ekki friðþægingu Innlent Svona kynntu oddvitarnir nýjan meirihluta í Viðey Innlent Hannes Valle fær þrjú ár fyrir brot á Múlaborg Innlent Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og Framsókn mynda meirihluta Innlent „Ákveðin svik við úrslit kosninganna“ Innlent „Þetta vita Einar og Björg“ Innlent Bardagabúr rís við Hvíta húsið Erlent „Orð hennar og þessar upphrópanir ekki til sóma“ Innlent Fleiri fréttir Krefjast þess að bankarnir dragi hækkanir til baka Hallgrímur kom í þáttinn sem mótvægi við oflof um Davíð Breytingum fórnað fyrir starfsfrið: „Friðjónslínan“ hafi ráðið för Bókstafir verði að tölustöfum Draugagangur, búrtíkur og öngull í rassi „Þetta vita Einar og Björg“ Skotið fór í gegnum handlegg og endaði í öxl Hafa þegar rætt við Daða Má um samgöngusáttmálann Taka ásýnd Varmár alvarlega og stöðva borframkvæmdir Mun dæma meirihlutann af verkunum Sjálfstæðismenn og Framsókn í eina sæng í Múlaþingi „Orð hennar og þessar upphrópanir ekki til sóma“ Reyndi að fá Miðflokk með og segir stöðu Ara ekki friðþægingu „Ákveðin svik við úrslit kosninganna“ Kolbeinn tekur við af Bryndísi sem ráðuneytisstjóri Vilja verja pláss íslenskra sjómanna Meirihluti myndaður í Viðey og Hildur nýr borgarstjóri Hildur Björnsdóttir nýr borgarstjóri Áherslur meirihlutasáttmálans: Svari ákalli um breytingar Svona kynntu oddvitarnir nýjan meirihluta í Viðey Hannes Valle fær þrjú ár fyrir brot á Múlaborg Þögull sem gröfin Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og Framsókn mynda meirihluta Alþjóðlegur sérfræðingur til liðs við Eyjagöng Vaktin: Hildur valdi Viðreisn og Framsókn Vilja fresta ESB-atkvæðagreiðslu þar til í október Vegavinna á Reykjanesbraut vestan Straumsvíkur Segir andstæðinga viðræðna leita í handbók Farage og Reform Íbúar miður sín og fuglalíf nær allt farið Féllust á að gera ekki lítið úr tilfinningum hinna eða ræða persónuleg mál Sjá meira