Jói Hjartar teflir á Djúpavík 6. júní 2009 03:45 Guðmundur heitinn með þeim bræðrum Hrafni og Illuga Báðir voru þeir í sveit hjá Guðmundi á Stóru-Ávík og nú efnir Hrafn til minningarmóts um hann.
Skáktrúboð Hrafns Jökulssonar er þekkt. Nú slær hann tvær flugur í einu höggi: Minnist bóndans þar sem hann var í sveit og stefnir snillingum í skákinni vestur. „Guðmundur í Stóru-Ávík var einstakur maður, sem öllum þótti vænt um. Hann var með allra skemmtilegustu mönnum sem ég hef kynnst," segir Hrafn Jökulsson, sem stendur að skákhátíð í Árneshreppi 19.-21. júní, sem helguð er minningu Guðmundar Jónssonar frá Stóru-Ávík. Guðmundur lést í vor, 63 ára að aldri. Hrafn er löngu kunnur fyrir að koma skáklistinni rækilega á kortið aftur eftir mögur ár, (frá því æðið var og hét um og eftir heimsmeistaraeinvígi Spasskís og Fischers), með mótahaldi og þegar hann stýrði skákklúbbnum Hróknum frá stofnun til Íslandsmeistaratitla. jóhann hjartarson Stigahæsti maður íslenskrar skáksögu mun tefla á minningarmótinu. Þótt Hrafn hafi nú um nokkurt skeið verið búsettur í Trékyllisvík norður á Ströndum er skáktrúboði hans hvergi nærri lokið. Minningarmótið sem haldið verður í Djúpavík verður öflugt og sjálfur Jóhann Hjartarson, stigahæsti meistari íslenskrar skáksögu, verður meðal keppenda. Og fleiri snillingar hafa boðað komu sína: Henrik Danielsen og Þröstur Þórhallsson, alþjóðameistararnir Arnar Gunnarsson og Björn Þorfinnsson, Róbert Harðarson FIDE-meistari og Gunnar Björnsson, forseti Skáksambandsins. Vonir standa til að Djúpavíkurmeistarinn 2008, Helgi Ólafsson, verði með, auk þess sem von er á áhugamönnum á öllum aldri og úr öllum áttum. Hrafn bendir á að mótið sé öllum opið og þátttaka ókeypis og hvetur menn eindregið til að skrá sig. Hrafn var í sveit hjá Guðmundi og rifjaði þau ár upp í bókinni Þar sem vegurinn endar. „Þótt Guðmundur gæti verið harður húsbóndi var gleðin alltaf örstutt undan," segir Hrafn. „Það var oft teflt í Stóru-Ávík og Guðmundur var snjall skákmaður. Það hefði verið honum að skapi að efna til skákveislu og skemmtunar, og ég vona að sem allra flestir heimsæki okkur í landsins fegurstu sveit af þessu tilefni." jakob@frettabladid.is
Mest lesið Nicole er fyrir norðan Lífið Stórglæsilegt Sigvaldahús á sölu Lífið Lofar að minnast Panettiere ávallt af virðingu Lífið Galvaskt gelludjamm hjá Guggu og guggunum Lífið Leikkonan var úrskurðuð látin á vettvangi Lífið Hvað veistu um... frjálsar íþróttir? Lífið Bestu hlutverk Hayden Panettiere Bíó og sjónvarp Barnalán hjá Brynju Dan Lífið Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Lífið Verjendur Davis segja ekkert að marka skjólstæðing sinn Lífið Fleiri fréttir Verjendur Davis segja ekkert að marka skjólstæðing sinn Lofar að minnast Panettiere ávallt af virðingu Stórglæsilegt Sigvaldahús á sölu Leikkonan var úrskurðuð látin á vettvangi Hvað veistu um... frjálsar íþróttir? Galvaskt gelludjamm hjá Guggu og guggunum Nicole er fyrir norðan Egill Heiðar og Kittý selja Garðabæjarslotið Helstu samsæriskenningarnar um Evrópusambandið „Ein miðaldra kona að tala um að hún hefði viljað mæta“ Barnalán hjá Brynju Dan Herra og frú Crivello hamingjusöm hjón Svana á tímamótum og selur slotið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Leikkonan Hayden Panettiere er látin Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Þórdís Elva er gengin út Efna til söfnunar í minningu Hennings Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Krakkatía vikunnar: Tinni, flekar og stór augu Þórdís Kolbrún fékk hlýjar móttökur Adam Driver mættur í Marvel-heiminn Fréttatía vikunnar: Björk, Usher og peningaþvætti Barbie-framhald í uppnámi vegna launakrafa Robbie Williams einhverfur Hálfsextugur Hamm að verða pabbi í fyrsta sinn Hjartnæm athöfn þegar Gunnar Þórðarson var jarðsunginn Sjá meira