Garðabær stendur langbest að vígi 6. júní 2009 04:00 Reykjavík Hver íbúi skuldar um 1,3 milljónir. Það þýðir 5,2 milljónir á fjögurra manna fjölskyldu. fréttablaðið/e.ól.
fjárhagur Tap á hvern íbúa í Reykjavík nam um 598.091 krónu á árinu 2008. Skuldir á hvern íbúa eru 1,3 milljónir á íbúa ef tekinn er mismunur á skuldum og eigin fé. Garðabær er í betri stöðu. Neikvæð staða bæjarins nam 38,9 milljónum á árinu 2008, sem samsvarar aukningu um 3.756 krónur á hvern íbúa. Hins vegar er hlutfall af eigin fé og skuldum jákvætt upp á tæpar 773 milljónir. Það þýðir að hver íbúi „á inni“ 74.582 krónur. Reykjanesbær er í svipaðri stöðu og Reykjavík. Neikvæð skuldastaða er rúmlega átta milljarðar á árinu 2008, sem nemur um 572.234 krónur á hvern íbúa. Skuldir á hvern íbúa nema um einni milljón. Kópavogur stendur betur að vígi. Tap bæjarins var um 9,6 milljarðar á árinu 2008 sem þýðir 320.937 krónur á hvern íbúa. Bærinn skuldar hins vegar um 23,5 milljarða sem þýðir 783.961 króna á íbúa. Á Akureyri var tap um 288.752 krónur á íbúa á árinu 2008. Akureyri skuldar um 18 milljarða, sem gerir rúmlega eina milljón á íbúa. Í Árborg er staðan mjög svipuð og á Akureyri og í Reykjanesbæ. Þar eru skuldir á hvern íbúa 913.300 krónur. Ekki var hægt að reikna út skuldastöðu á hvern íbúa í Hafnarfirði. Ástæðan er sú að ekki er enn ljóst hvernig ársreikningurinn verður þar sem hann hefur hvorki verið samþykktur af skoðunarmönnum né ræddur af bæjarstjórn. Við íbúatölur í útreikningum er miðað við tölur Hagstofu Íslands frá 1. janúar 2009. Í öllum skuldatölum er gert ráð fyrir mismuninum á eigin fé og skuldum. vidirp@frettabladid.is
Mest lesið Reið en þakklát fyrir lífsbjörgina Innlent „Ef við fáum enga ferðamenn, verðum við að skjóta hundana“ Innlent „Stefnum að því að koma meira en tvíefld til baka“ Innlent Gluggar þaktir klósettpappír og túrblóð í lakinu: „Aldrei séð annað eins“ Innlent Alltaf jafn óþægilegt að heyra af nálægri árás Innlent Þungt högg í magann með tvíburastelpur á vökudeild Innlent Nýja brúin átti að bæta flæðið: Mislæga lausnin vék fyrir ljósum Innlent Kvöldfréttir Sýnar í beinni Innlent Tjaldsvæðisgestir vöknuðu við að þyrla lenti á vellinum Innlent „Mér finnst þau komin í ansi mikla meðvirkni með þessu félagi“ Innlent Fleiri fréttir „Ef við fáum enga ferðamenn, verðum við að skjóta hundana“ Ekið á dreng á hjóli og aðrir fluttir á slysadeild eftir hjólaslys Á sjúkrahús eftir að hafa flogið af mótorhjólinu Eldur kviknaði á Fiskislóð Reið en þakklát fyrir lífsbjörgina Kominn til Akureyrar eftir alvarlegt slys á skemmtiferðaskipi „Það er verið að dreifa athyglinni, það er verið að auka óvissu“ „Gott og vel við skulum trúa ráðherranum“ Utanríkisráðherra svarar og kona stórslasaðist á hlaupahjóli Ekki um „týndar skýrslur“ að ræða Hart tekist á um ESB Burðardýr Stúarts litla dæmd í sex ára fangelsi Tekinn úr umferð vegna ótrúlegrar brotahrinu Góðu fréttirnar þær að innlend verðbólga sé á undanhaldi Druslur ganga í fjórtánda sinn: „Aldrei verið meiri þörf á því heldur en núna“ Tveir af þremur í fangelsi vegna eldri dóma Air China hefur sölu á flugmiðum frá Íslandi til Kína Verðbólgan eykst enn og borgarstjóri boðar aðgerðir gegn innbrotum Kynna nýtt varanúmer fyrir Neyðarlínuna Vara við hviðum sunnan við Vatnajökul Pallborðið: Nei eða já? Hvalavinir lýsa eftir týndum skýrslum Leggur til breytingar á útivistartíma barna Mikil óhreinindi í ólöglegum peptíðum Fólk að skila sér heim eftir rassskellingu Austurfrétt liggur niðri vegna netárásar Tekið fram að svipting starfsleyfis eigi ekki að vera refsing Umræðan hafi „aftur og aftur snúist um getgátur, misskilning og útúrsnúninga“ Stúlkan fannst heil á húfi „Við hlaupum bara hraðar eftir því sem gestunum fjölgar“ Sjá meira