Spurt út í viðskipti borgarinnar og MP 6. júní 2009 04:00 Í Reykjavík Fjármálastjóri borgarinnar segir að þjónusta vegna láns Reykjavíkurborgar frá lífeyrissjóðum hafi ekki verið útboðsskyld. Slík viðskipti borgarinnar séu á höndum margra fyrirtækja. Fréttablaðið/Vilhelm „
Ég er hissa á að þessu skuli enn ekki hafa verið svarað – það ætti að vera einfalt að fletta þessu upp,“ segir Þorleifur Gunnlaugsson, borgarfulltrúi Vinstri grænna, sem á borgarstjórnarfundi á þriðjudag óskaði eftir upplýsingum um millilið í fimm milljarða króna láni borgarinnar hjá lífeyrissjóðum. „Af þessu tilefni er ekki úr vegi að spyrja borgarstjóra að því hvernig að lántökunni var staðið. Er það rétt að til verksins hafi verið fenginn milliliður sem þegið hafi tugi milljóna króna í þóknun?“ spurði Þorleifur á borgarstjórnarfundinum. „Sé svo, óska ég eindregið eftir að vita, hvaða ástæða var til þess að borgin gat ekki milliliðalaust fengið umrætt lán hjá lífeyrissjóðum landsmanna og sloppið þannig við umtalsverð fjárútlát.“ Fyrirspurn Þorleifs hefur ekki enn verið svarað. Hins vegar liggur fyrir að það er fyrirtækið MP verðbréf sem hefur milligöngu um viðskiptin. Þorleifur Gunnlaugsson Birgir Björn Sigurjónsson, fjármálastjóri Reykjavíkurborgar, segir að rætt hafi verið við ráðgjafa borgarinnar og þreifað fyrir sér með þóknanir áður en samstarfið við MP hafi verið ákveðið. Fjármálaviðskipti borgarinnar séu dreifð á marga aðila og að venjan hafi ekki verið sú að bjóða út verkefni á borð við þetta sem reyndar feli í sér mikla umsýslu með stórum skuldabréfaflokki til 45 ára í Kauphöllinni. Í viðskiptum eins og um ræði sé nauðsynlegt að vera í samstarfi við fyrirtæki sem eigi aðild að Kauphöll Íslands. „Ef við hefðum verið í beinum samningum við lífeyrissjóðina þá hefði verið líka um að ræða einhvers konar þinglýsingargjöld eða stimpilgjöld á gerningum vegna veðs. Ef það hefði verið niðurstaðan hefði það verið margfaldur þessi kostnaður. Það er okkar mat að alveg sama hvort horft er á vaxtakjörin sjálf eða umsýslugjöld eða annað kostnað sem tengdur er þessari lántöku þá séum við bara í mjög hagstæðu máli,“ segir Birgir sem kveður það af og frá að MP sé í þessu máli í einhverri sjálftöku á peningum hjá borgarsjóði. Birgir Björn Sigurjónsson Aðspurður segir Birgir það ekki hafa tíkðast hjá borginni að bjóða út verkefni eins og þessi. „Við höfum ekki heldur boðið út alla fjármálaþjónustuna við okkur. Ef það væri, að við byðum út alla fjármálaþjónustu við borgina; eftirlit með erlendum lánum og innlendum lánum, skuldabréfaútboð og -útgáfu og hvað sem væri – þá auðvitað væri það útboðsskylt. En við höfum verið með þetta miklu meira í smábútum og reynt að semja eins vel um hvert og eitt og við höfum getað,“ segir fjármálastjóri Reykjavíkurborgar. gar@frettabladid.is
Mest lesið Reið en þakklát fyrir lífsbjörgina Innlent „Ef við fáum enga ferðamenn, verðum við að skjóta hundana“ Innlent „Stefnum að því að koma meira en tvíefld til baka“ Innlent Gluggar þaktir klósettpappír og túrblóð í lakinu: „Aldrei séð annað eins“ Innlent Alltaf jafn óþægilegt að heyra af nálægri árás Innlent Nýja brúin átti að bæta flæðið: Mislæga lausnin vék fyrir ljósum Innlent Þungt högg í magann með tvíburastelpur á vökudeild Innlent Kvöldfréttir Sýnar í beinni Innlent Tjaldsvæðisgestir vöknuðu við að þyrla lenti á vellinum Innlent „Mér finnst þau komin í ansi mikla meðvirkni með þessu félagi“ Innlent Fleiri fréttir „Ef við fáum enga ferðamenn, verðum við að skjóta hundana“ Ekið á dreng á hjóli og aðrir fluttir á slysadeild eftir hjólaslys Á sjúkrahús eftir að hafa flogið af mótorhjólinu Eldur kviknaði á Fiskislóð Reið en þakklát fyrir lífsbjörgina Kominn til Akureyrar eftir alvarlegt slys á skemmtiferðaskipi „Það er verið að dreifa athyglinni, það er verið að auka óvissu“ „Gott og vel við skulum trúa ráðherranum“ Utanríkisráðherra svarar og kona stórslasaðist á hlaupahjóli Ekki um „týndar skýrslur“ að ræða Hart tekist á um ESB Burðardýr Stúarts litla dæmd í sex ára fangelsi Tekinn úr umferð vegna ótrúlegrar brotahrinu Góðu fréttirnar þær að innlend verðbólga sé á undanhaldi Druslur ganga í fjórtánda sinn: „Aldrei verið meiri þörf á því heldur en núna“ Tveir af þremur í fangelsi vegna eldri dóma Air China hefur sölu á flugmiðum frá Íslandi til Kína Verðbólgan eykst enn og borgarstjóri boðar aðgerðir gegn innbrotum Kynna nýtt varanúmer fyrir Neyðarlínuna Vara við hviðum sunnan við Vatnajökul Pallborðið: Nei eða já? Hvalavinir lýsa eftir týndum skýrslum Leggur til breytingar á útivistartíma barna Mikil óhreinindi í ólöglegum peptíðum Fólk að skila sér heim eftir rassskellingu Austurfrétt liggur niðri vegna netárásar Tekið fram að svipting starfsleyfis eigi ekki að vera refsing Umræðan hafi „aftur og aftur snúist um getgátur, misskilning og útúrsnúninga“ Stúlkan fannst heil á húfi „Við hlaupum bara hraðar eftir því sem gestunum fjölgar“ Sjá meira