Jón varð undir í þingflokknum 6. febrúar 2009 16:44 Þingflokkur Frjálslynda flokksins að undanskildum Kristni H. ásamt starfsmönnunum Magnúsi Reyni Guðmundssyni og Magnúsi Þór Hafsteinssyni.
Jón Magnússon, þingflokksformaður Frjálslynda flokksins, varð undir í atkvæðagreiðslu í þingflokknum fyrr í vikunni þegar tekin var ákvörðun um það hvort að flokkurinn stillti sér upp með stjórnarflokkunum og Framsóknarflokknum gegn Sjálfstæðisflokknum við kosningu fastanefnda Alþingis. Við kosningu þingmanna í fastanefndirnar á miðvikudaginn komu fram tveir listar. Annar innihélt einungis þingmenn Sjálfstæðisflokks en hinn þingmenn Samfylkingar, Vinstri grænna, Framsóknarflokks og Frjálslynda flokksins. Við þetta fjölgaði fulltrúum Frjálslynda flokksins í fastanefndum þingsins um fjóra og sitja þingmenn flokksins nú ellefu nefndum. Samkvæmt heimildum fréttastofu vildi Jón að flokkurinn tæki sér stöðu með Sjálfstæðisflokknum þegar kom að skiptingu fastanefnda. Kosið var um málið á þingflokksfundi og varð Jón undir í atkvæðagreiðslunni. Guðjón Arnar Kristjánsson, Kristinn H. Gunnarsson og Grétar Mar Jónsson vildu allir að flokkurinn stillti sér upp með stjórnarflokkunum og Framsóknarflokknum. Leiða má líkum að því að það hafi verið síðasta hálmstráið því Jón hefur nú opinberað að hann hyggst ekki gefa kost á sér fyrir flokkinn í komandi þingkosningum. Jón sagði í samtali við fréttastofu í morgun Frjálslynda flokkinn ekki tala nægjanlega skýrt í mikilvægum málum og innan hans séu miklar deilur.
Tengdar fréttir Siðferðisbrestur Guðjóns - hættir á þingi fyrir Frjálslynda „Þegar menn búa við heimilisböl til lengri tíma þá endar það með því að þeir segja hingað og ekki lengra," segir Jón Magnússon, þingflokksformaður Frjálslynda flokksins, sem hefur ákveðið gefa ekki kost á sér fyrir flokkinn í komandi þingkosningum. Jón segir Guðjón Arnar Kristjánsson, formann flokksins, hafa sýnt alvarlegan siðferðisbrest. 6. febrúar 2009 10:41 Mest lesið Vanhelgunin ýmist skemmdarverk eða persónuleg árás Innlent Árið gert upp í Kryddsíld 2025 Innlent „Margir sem því miður eru ekki jafn heppnir og ég“ Innlent Segir myndbandsupptöku af því þegar skórnir voru teknir Innlent Dótturdóttir JFK er látin Erlent Tveir með alvarlega áverka eftir hnífstunguárás Innlent Kamilla Bretadrottning greinir frá kynferðisofbeldi Erlent Grunaður um stórfellda líkamsárás og frelsissviptingu Innlent Eitthvað í íslensku samfélagi fjandsamlegt börnunum okkar Innlent Enn fleirum sagt upp hjá Árvakri Innlent Fleiri fréttir Eitthvað í íslensku samfélagi fjandsamlegt börnunum okkar Simmi vinsælasti leynigesturinn „Þetta er Íslandsmet, Íslandsmet í svikum“ Tal um Ingu eftir kosningar ekki til sóma Gummi lögga er maður ársins 2025 Árangur breyti ekki alltaf upplifun fólks „Viðreisn jafnvel erfiðari viðfangs en Flokkur fólksins“ Vara við hættu á sinubruna Haldlögðu metmagn af fíkniefnum á árinu Vanhelgunin ýmist skemmdarverk eða persónuleg árás Árið gert upp í Kryddsíld 2025 Hafþór Freyr maður ársins að mati lesenda Vísis og hlustenda Bylgjunnar Segir myndbandsupptöku af því þegar skórnir voru teknir Tveir með alvarlega áverka eftir hnífstunguárás Vonast til að rafmagn verði komið á seinni partinn Rúmur helmingur bjartsýnn fyrir 2026 Grunaður um stórfellda líkamsárás og frelsissviptingu „Við bara svolítið sitjum uppi með þetta“ Börn niður í leikskólaaldur um helmingur þeirra sem slasast „Margir sem því miður eru ekki jafn heppnir og ég“ Sátt við fyrsta árið og taka stöðuna vegna forfalla ráðherra á næstu dögum Tíu létust í umferðinni á árinu og alvarlegustu slysunum fækkar ekki Árangur aðgerða ekki staðist væntingar almennings Enn fleirum sagt upp hjá Árvakri Ríkisstjórnin sek um ósanngjarna mismunun Vonbrigði í menntamálum og áramótasprengja Hafa áhyggjur af frelsissviptingu barna í brottfararstöð Kristrún ræðir við Pétur um borgarstjórnarframboð Níu ráðherrar funda með Höllu Söfnun fyrir Kjartan gengur vel Sjá meira
Siðferðisbrestur Guðjóns - hættir á þingi fyrir Frjálslynda „Þegar menn búa við heimilisböl til lengri tíma þá endar það með því að þeir segja hingað og ekki lengra," segir Jón Magnússon, þingflokksformaður Frjálslynda flokksins, sem hefur ákveðið gefa ekki kost á sér fyrir flokkinn í komandi þingkosningum. Jón segir Guðjón Arnar Kristjánsson, formann flokksins, hafa sýnt alvarlegan siðferðisbrest. 6. febrúar 2009 10:41