Konur í ánauð neyddar til að skrifa upp á skuldaviðurkenningar Karen Kjartansdóttir skrifar 1. desember 2009 18:45
Dæmi eru um að erlendum konum sem haldið hefur verið í ánauð hér á landi hafi verið í svo mikilli einangrun að þær vita ekki hvar þær búa, enda þótt þær hafi dvalið hér árum saman. Þá hafa konur verið neyddar til að skrifa upp á skuldaviðurkenningar. Ný rannsókn Kvennaathvarfsins sem greint var frá um helgina sýnir að konur sem koma utan Evrópska efnahagssvæðisins eru varnarlausar fyrir ofbeldi maka sinna. Ástæðan er sú að framlenging dvalarleyfis kvennanna er oft í höndum karlanna í fjögur ár eftir komu. Dæmi eru um að menn hafi hótað konum sínum brottrekstri verði þær ekki að vilja þeirra í einu og öllu, sumir hafi jafnvel skipt út konum eftir hentugleika. Ákvæði í lögum sem á að nýtast þessum konum gerir það ekki nægilega vel sakir þess hve konurnar eru oft einangraðar eða eins og segir um aðstæður einnar í rannsóknni. „Kona kom í lögreglufylgd í Kvennaathvarf. Hún hafði búið á Íslandi í nokkur ár en gat ekki gefið upp heimilisfang. Hún vissi ekki hvar hún bjó enda hafði maður hennar haldið henni einangraðri allt frá því hún kom til landsins." Misnotkunin sem konurnar hafa orðið fyrir er af alls kyns toga. Eða eins og segir um aðstæður einnar konunnar í rannsóknni: „Konan er stórskuldug vegna skulda kærastans en hún þorir ekki annað en að skrifa upp á skuldaviðurkenningar fyrir hann því hann hótar að gera börnum þeirra mein ef hún neitar." Sigþrúður Guðmundsdóttir framkvæmdstýra Kvennaathvarfsins segir aðeins brot mála sem þessa komast á yfirborðið. Fólk verði að vera vakandi fyrir aðstæðum kvenna sem kunna að búa við ofbeldi, ekki síst erlendra kvenna sem hafi oft minna tengslanet heldur en þær íslensku.
Tengdar fréttir Ofbeldismenn skipta konum út eftir hentugleika Dæmi eru um að ofbeldismenn hér á landi velji sér kerfisbundið eiginkonur frá löndum utan Evrópska efnahagssvæðisins og skipti þeim út eftir hentugleika. Þetta sýna gögn Kvennaathvarfsins en konur sem koma hingað frá löndum utan EES eru oft háðar maka um framlengingu dvalarleyfis. 29. nóvember 2009 19:30 Mest lesið Viðreisn fjarlægir bænina af Facebook: „Við viljum ekki særa fólk“ Innlent „Þá er verið að hugsa um mögulegt viðbragð í neyðarástandi“ Innlent Á sjötta tug björgunarsveitarfólks kom að björguninni Innlent Ekki fleiri tilkynnt innbrot síðan 2022 Innlent Nágranninn bjargaði Sævari sem missti næstum af almyrkvanum Innlent Þyrla Landhelgisgæslunnar kölluð út vegna veikinda Innlent Forystumenn láti stór orð falla sér og sínum málstað til framdráttar Innlent Tveir látnir í gróðureldum í Grikklandi Erlent Gerir upp hús hannað af Guðjóni Samúelssyni Innlent Sigurgeir þurfti að hætta og var fluttur á sjúkrahús Innlent Fleiri fréttir Viðreisn fjarlægir bænina af Facebook: „Við viljum ekki særa fólk“ Gerir upp hús hannað af Guðjóni Samúelssyni Á sjötta tug björgunarsveitarfólks kom að björguninni Ekki fleiri tilkynnt innbrot síðan 2022 „Þá er verið að hugsa um mögulegt viðbragð í neyðarástandi“ Þyrla Landhelgisgæslunnar kölluð út vegna veikinda Forystumenn láti stór orð falla sér og sínum málstað til framdráttar Þyrlan sótti slasaðan göngumann við Glym Spánverjum fjölgar þvert á þróunina Sigurgeir þurfti að hætta og var fluttur á sjúkrahús Það er jóker í spilinu Skoða hvort gerviaðgangar og grunsamlegar síður séu erlend öfl í dulbúningi Páll Magnússon tekur við af Kristjáni Nágranninn bjargaði Sævari sem missti næstum af almyrkvanum Brotist inn í Barnaloppuna Kristján Kristjánsson kveður Sprengisand Íbúi í Kænugarði um stríðið og áhyggjur lögreglu af erlendum áhrifum á ESB-kosningu Fortíð og framtíð Íslands í Evrópu á Sprengisandi Mundaði stólinn og lamdi gesti „Bara, hvað dettur gömlu fólki í hug að gera?“ Þrengja Reykjaveg og loka tveimur götum við Laugarnesskóla Fjöldi ökumanna á von á kæru Ísraelskir ferðamenn með ógnandi tilburði á palestínsku kaffihúsi Þyrlan sækir slasaðan mann á Hestfjall Miðflokksmenn helmingi líklegri til að segja já en Sjálfstæðismenn Ósátt með fyrirhugaða sameiningu lögregluembætta Grindvískir krakkar sneru aftur á völlinn Lögnin komin á land en verður látin kyrr liggja „Önnur ríki með sérþarfir hafa miklu meira vægi í þeirri umræðu“ Bananastappa og hlaupbangsar á matseðlinum í tilraun tvö Sjá meira
Ofbeldismenn skipta konum út eftir hentugleika Dæmi eru um að ofbeldismenn hér á landi velji sér kerfisbundið eiginkonur frá löndum utan Evrópska efnahagssvæðisins og skipti þeim út eftir hentugleika. Þetta sýna gögn Kvennaathvarfsins en konur sem koma hingað frá löndum utan EES eru oft háðar maka um framlengingu dvalarleyfis. 29. nóvember 2009 19:30