Hannaði hjálpartæki gleðinnar Jón Hákon Halldórsson skrifar 1. desember 2009 10:00 Maður kemst ekki hjá því að brosa ef maður er með brosarann. „
Kínversk speki segir að ef þú brosir fimm sinnum á hverjum degi án tilefnis, breytir þú lífi þínu á níutíu dögum," segir listamaðurinn Gegga, eða Helga Birgisdóttir, sem hefur hannað svokallaðan brosara sem fólk getur nýtt sér til þess að fást við lífið og tilveruna. „Ég er þannig að ég trúi sjálf að maður geti stýrt dálítið lífi sínu með hugsunum sínum og að maður sé skapari síns eign lifs. Ef þú ert mjög fúll eða eitthvað annað að þá dregur þú að þér meiri erfiðleika. En ef þú ert kátur og léttur og jákvæður að þá dregur þú að þér meiri jákvæðni," segir Gegga. Hún bendir að að gamalt máltæki segi að ef maður brosi að þá brosi heimurinn á móti. „Málið er að þetta er satt. Það er búið að rannsaka það meira að segja með vísindalegri rannsókn," segir Gegga. Hún segist hafa verið búin að vera að hugsa um brosarann í dálítinn tíma en hún hafi aldrei gengið það langt að klára hugmyndina fyrr en kreppan skall á. Þá hafi runnið upp fyrir henni að það væri full þörf fyrir brosarann. „Ég meira að segja sagði sjálf upp vinnunni minni, ég er hjúkka, og ég sagði upp þegar kreppan skall á í október. Því svona er ég. Ég læt drauma mína rætast og læt ekki ytri aðstæður stöðva mig - innan skynsamlegra marka þó," segir Gegga. Brosarinn, sem Gegga hefur hannað, er handgerður skartgripur, gerður úr postulíni og silfri. Gegga segir að formið vísi í bein því það sé jú vitað að hundar dilli skottinu þegar þeir sjái slíkan dýrgrip. Gegga segir að gripurinn sé hjálpartæki sem sé notaður sem skartgripur á milli þess sem hann er í munnvikunum.
Mest lesið Íslendingar í alvarlegu umferðarslysi í Suður-Afríku Innlent Halla forseti opnar sig um kynferðisbrot í æsku Innlent Bústaðakirkja opnuð vegna slyssins í Suður-Afríku Innlent Nemandi réðst á kennara á jólaskemmtun í Ingunnarskóla Innlent Enn fleiri myndir úr safni Epsteins: „En hún vill þúsund dali fyrir hverja stúlku“ Erlent Reynslubolti kveður lögregluna Innlent Stormur gæti skollið á landið á aðfangadag Innlent Katrín orðin stjórnarformaður Innlent Hæstiréttur vill ekki hlýða á Kristján Markús Innlent Fjögur vilja stöðu ríkislögreglustjóra Innlent Fleiri fréttir Standi ekki til að leggja niður Rás 2 þrátt fyrir boðaða heimild Bæta hjóla- og göngustíga í Breiðholti, Grafarholti og í Elliðaárdal Birkir vill þriðja til fjórða sæti hjá Samfylkingu Lítið snjóflóð féll á snjótroðara í Hlíðarfjalli Tímamótasamningur Sjúkratrygginga og SÁÁ Hætta á snjóflóðum til fjalla í Eyjafirði Hluti auglýsingatekna Rúv renni til einkarekinna fjölmiðla „Við látum alltaf taka okkur í bakaríið á endanum“ Götulokanir í miðborginni á Þorláksmessu og um áramót Logi kynnti aðgerðir í þágu fjölmiðla Einn handtekinn í aðgerð sérsveitar á Selfossi Bústaðakirkja opnuð vegna slyssins í Suður-Afríku Stormur gæti skollið á landið á aðfangadag Kílómetragjaldið verður að veruleika og hvassviðri um jólin Funduðu í 320 klukkustundir og afgreiddu 37 frumvörp Telja innbrot og umferðarlagabrot mesta vandamálið Katrín orðin stjórnarformaður Hæstiréttur vill ekki hlýða á Kristján Markús Nemandi réðst á kennara á jólaskemmtun í Ingunnarskóla Halla forseti opnar sig um kynferðisbrot í æsku Íslendingar í alvarlegu umferðarslysi í Suður-Afríku Fjögur vilja stöðu ríkislögreglustjóra Þrír vasaþjófar handteknir á gistiheimili Laugarneshverfi Starfslokasamningar undirstofnana kostað hátt í 175 milljónir Reynslubolti kveður lögregluna Leitaði á lögreglustöð til að komast úr járnunum Mikið álag á bráðamóttökunni á Akureyri Magnús Þór sjálfkjörinn Fimm ára dómur fyrir hnífaárás á fjölskylduföður Telur hagræðingaráformin þau metnaðarfyllstu Sjá meira