Innlent

Vill hækka útsvar í Reykjavík

Þorleifur Gunnlaugsson.
Þorleifur Gunnlaugsson.

Borgarfulltrúi Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs, Þorleifur Gunnlaugsson, vill fullnýta útsvarið og lagði tillögu þess eðlis fyrir borgarstjórnarfund í morgun og var henni vísað til borgarstjórnar.

Þar stóð:

Borgarráð samþykkir að hækka álagningarhlutfall útsvars úr 13,03% í 13,28% af tekjum einstaklinga í Reykjavík og fullnýta þannig útsvarsheimildir borgarinnar.

Greinargerð:

Það er ljóst að annað árið í röð er mikill niðurskurður í rekstri borgarinnar.

Velferðarmál, menntamál, leikskólamál, atvinnumál og málefni frístundaheimila eru dæmi um málaflokka sem líða vegna þessa niðurskurðar. Ákvörðun meirihlutans við afgreiðslu síðustu fjárhagsáætlunar um að fullnýta ekki heimild til útsvarshækkunar hefur nú þegar skaðað þessa mikilvægu málaflokka og verði leikurinn endurtekinn mun Reykjavíkurborg tapa umtalsverðum upphæðum til viðbótar.

Útsvarshækkun upp á 0,25% getur leitt til um 700 milljóna króna tekna fyrir borgina, en myndi auka skattbyrði einstaklings með 6 milljóna króna árslaun 15.000 krónur á ári.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×