Hefur áhyggjur af heimilunum og aðgerðarleysi ríkisstjórnarinnar 5. maí 2009 11:12 Eygló Harðardóttir
Eygló Harðardóttir þingmaður Framsóknarflokksins segist hafa ofboðslegar áhyggjur af stöðu heimilanna í landinu þar sem ekki sé von á frekari aðgerðum frá ríkisstjórninni. Hún segir óásættanlegt að binda heilu kynslóðirnar í skuldafjötra en það sé það sem blasi við. Eygló var Í bítinu á Bylgjunni í morgun ásamt Katrínu Júlíusdóttur fulltrúa Sumfylkingarinnar. „Mér fannst sláandi að eftir mal og blaður fulltrúa Samfylkingarinnar þá virðist vera sem ríkisstjórnin sé búin að gera allt sem hún hefur í hyggju fyrir heimilin í landinu. Þær aðgerðir sem gripið var til fyrir kosningar er allt og sumt. Það skýrir kannski ástæðu þess að brugðist hefur verið við nánast með hótunum eins og viðskiptiráðherra hefur gert og svo forsætis- og félagsmálaráðherra. Ég velti því bara fyrir mér hvort fólki geri sér grein fyrir þessu," segir Eygló í samtali við fréttastofu. Hún segist ekki hafa gert sér grein fyrir þessu fyrr en hún heyrði Katrínu ræða þessi mál í morgun en fólkið í landinu geti hlakkað til hugsanlegra vaxtabóta í ágúst en það sé allt of sumt. „Ég hef ofboðslegar áhyggjur af stöðu mála eftir fréttir undanfarinna daga þar sem fók hefur verið að lýsa aðstæðum sínum. Það er algjörlega óásættanlegt að binda heilu kynslóðirnar í skuldafjötra," segir Eygló. Hún tekur síðan dæmi um fólk sem er með íbúðalán upp á þrjátíu milljónir en íbúð sem nú er metin er á tuttugu milljónir. „Síðan þarftu kannski eitt auka herbergi og kaupir nýja íbúð. Þá þarftu að taka þessar tíu milljónir með þér og finna veð fyrir þeim. Fólk er því bundið næstu áratugi í þessu húsnæði. Þessu hef ég áhyggjur af."
Mest lesið Eigi ekki að kosta milljónir króna að klæðast landsliðsbúningnum Innlent Slasaðist alvarlega við heyskap Innlent Brotist inn í þrjá gáma og dýr verkfæri tekin ófrjálsri hendi Innlent Drykkurinn komi úr flösku ráðherra Innlent Mótorhjól og bíll skullu saman Innlent Nálægt því að útrýma moskítóflugu á Suðurlandi Innlent Ferðamaðurinn fundinn heill á húfi á Suðurlandi Innlent Sjötugur maður tapað hundrað og átta milljónum til fjárkúgara Innlent Einbreiðar brýr við Berufjörð og Reyðarfjörð líklega næstar Innlent Stórbruni í Drammen og dularfull staða moskítóflugunnar Innlent Fleiri fréttir Eigi ekki að kosta milljónir króna að klæðast landsliðsbúningnum Skynet langt undan en íslensk stjórnvöld þurfa að vera undirbúin „Klappað eins og það væri stórstjarna að koma inn“ Óttast að „bottar“ muni ýta undir ágreining í aðdraganda atkvæðagreiðslu Íslensk hjón þurft að flýja undan gróðureldum á Spáni Báti var siglt yfir kajakræðara Kvöldfréttir í heild sinni „Ég hef aldrei lent í öðru eins“ Fimm fluttir til aðhlynningar eftir árekstur Skipverjarnir áttu að fá 2,5 milljónir króna á haus Endurkoma Herjólfs vekur upp ýmsar spurningar Standa með félagsmanni sem var sviptur frelsi Íslendingur á Benidorm stöðvaður eftir tíu daga svikahrinu Halda samráðsfund vegna innbrotahrinu Auka nákvæmni rauntímaupplýsinga Vara við hviðum á landinu suðaustanverðu Sólmyrkvinn ógnar fjarskiptum og Mærudagar ganga í garð Úttekt landlæknis á Hraunbúðum: Fagmenntað starfsfólk langt undir lágmarksviðmiðum „Ef við fáum enga ferðamenn, verðum við að skjóta hundana“ Ekið á dreng á hjóli og aðrir fluttir á slysadeild eftir hjólaslys Á sjúkrahús eftir að hafa flogið af mótorhjólinu Eldur kviknaði á Fiskislóð Reið en þakklát fyrir lífsbjörgina Kominn til Akureyrar eftir alvarlegt slys á skemmtiferðaskipi „Það er verið að dreifa athyglinni, það er verið að auka óvissu“ „Gott og vel við skulum trúa ráðherranum“ Utanríkisráðherra svarar og kona stórslasaðist á hlaupahjóli Ekki um „týndar skýrslur“ að ræða Hart tekist á um ESB Burðardýr Stúarts litla dæmd í sex ára fangelsi Sjá meira