Innlent

Fjögur flóð féllu á sama stað

Fjögur flóð féllu á sama vegarkafla á miðvikudag og fram á fimmtudagsmorgun.  Fréttablaðið/JSE
Fjögur flóð féllu á sama vegarkafla á miðvikudag og fram á fimmtudagsmorgun. Fréttablaðið/JSE
Fjögur snjóflóð féllu á veginn við Sauðanes, milli Dalvíkur og Ólafsfjarðarganga, á miðvikudag og í fyrrinótt. Eitt þeirra var sýnu stærst; krapaflóð sem féll snemma í gærmorgun og tók þá þrjár klukkustundir að opna veginn að nýju, að sögn Felix Jósafatssonar, lögregluvarðstjóra á Dalvík. Engir bílar voru á ferð um veginn þegar flóðin féllu.

„Það er ekkert grín ef það fara bílar með þessu fram af veginum,“ sagði Sveinn Brynjólfsson, hjá Veður­stofu Íslands, við Fréttablaðið. Hann sagði að í fyrravetur hefðu snjóflóð tuttugu sinnum lokað veginum á þessum stutta kafla við Sauðanes, þar sem vegur­inn liggur hæst milli Dalvíkur og Ólafsfjarðar.

Sveinn taldi síðdegis í gær ekki teljandi hættu á að snjóflóð mundu halda áfram að falla á veginn enda var spáð hlýrra og stilltara veðri.

Snjóflóð féll einnig í Eyrarhlíð, milli Ísafjarðar og Hnífsdals, seint í fyrrakvöld og lokaði veginum þar um tíma. Eins féll spýja úr Súðavíkurhlíð. - pg



Fleiri fréttir

Sjá meira


×