Úrslitin í American Idol ráðast í kvöld 20. maí 2009 13:37
IDOL-AÐDÁENDUR um heim eru með öndina í hálsinum í dag en í kvöld liggur fyrir hver sigrar American Idol - Adam Lambert og Khris Allen. Stöð 2 sýnir beint frá úrslitasþættinum og hefst beina útsendingin á miðnætti. Á undan verður flutningur tvímenninganna frá því í gær sýndur í heild sinni en þar sungu þeir þrjú lög hver. Einn gamlar sálarstandard, eitt af þeim lögum sem þeir sungu áður í keppninni og telst til hápunkta þeirra og svo frumsamið Idol-lag „No Boundaries" sem Idol-dómarinn Kara DioGuardi er meðhöfundur að. Adam tók gamla sálarstandard Otis Redding „A Change is Gonna Come", endurtók listilegan flutning sinn á gamla Tears For Fears-laginu „Mad World" á meðan Khris tók Marvin Gaye klassíkina „What's Going On" og Bill Withers-standardinn „Ain't No Sunshine". Báðir keppendur stóðu sig frábærlega að mati dómnefndar og sýndu það og sönnuðu svo um munaði að þeir áttu skilið að ná alla leið í úrslit. Er það og mál manna að keppnin hafi sjaldan verið tvísýnni en sitt sýnist hverjum um það hvor fer með sigur úr bítum í símakosningunni en gert er ráð fyrir að hátt í 100 milljónir atkvæða verði greidd á þeim sólarhring sem símakosning stendur yfir. Úrslitaveislan í American Idol hefst klukkan 23 með flutningi Adams og Kris frá því í gærkvöldi eins og fyrr segir en strax að því loknu uppúr miðnætti hefst sjálfur úrslitaþátturinn í beinni útsendingu en þulur þar verður Idol-sérfræðingurinn og útvarpsmaður á Bylgjunni, Ívar Guðmundsson. Meðfylgjandi er YouTube-myndband af Adam Lambert sem fer eins og eldur í sinu um heiminn en þar syngur hann eins og engill á menntaskólaútskrift sinni. Eins og glögglega má sjá þá er hárliturinn allt annar og ljósari en Adam hefur viðurkennt að rauður sé hans raunverulegi hárlitur. http://www.youtube.com/watch?v=wA7bA6rhKvc Til að gæta jafnræðis er hér flutningur með Kris á lagi sem hann tók upp áður en Idol-ævintýri hans hófst. Það sýnir að hann er síður en svo byrjandi á tónlistarsviðinu en þess má geta að hann er sprenglærður fiðluleikari. http://www.youtube.com/watch?v=bErXVBLpkB8
Mest lesið Stórglæsilegt Sigvaldahús á sölu Lífið Nicole er fyrir norðan Lífið Lofar að minnast Panettiere ávallt af virðingu Lífið Hemma Gunn-stytta og heitur pottur í 192 milljóna króna raðhúsi Lífið Galvaskt gelludjamm hjá Guggu og guggunum Lífið Leikkonan var úrskurðuð látin á vettvangi Lífið Hvað veistu um... frjálsar íþróttir? Lífið Bestu hlutverk Hayden Panettiere Bíó og sjónvarp Barnalán hjá Brynju Dan Lífið Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Lífið Fleiri fréttir Prjóna á klúbbnum án þess að prjóna yfir sig Hemma Gunn-stytta og heitur pottur í 192 milljóna króna raðhúsi Verjendur Davis segja ekkert að marka skjólstæðing sinn Lofar að minnast Panettiere ávallt af virðingu Stórglæsilegt Sigvaldahús á sölu Leikkonan var úrskurðuð látin á vettvangi Hvað veistu um... frjálsar íþróttir? Galvaskt gelludjamm hjá Guggu og guggunum Nicole er fyrir norðan Egill Heiðar og Kittý selja Garðabæjarslotið Helstu samsæriskenningarnar um Evrópusambandið „Ein miðaldra kona að tala um að hún hefði viljað mæta“ Barnalán hjá Brynju Dan Herra og frú Crivello hamingjusöm hjón Svana á tímamótum og selur slotið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Leikkonan Hayden Panettiere er látin Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Þórdís Elva er gengin út Efna til söfnunar í minningu Hennings Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Krakkatía vikunnar: Tinni, flekar og stór augu Þórdís Kolbrún fékk hlýjar móttökur Adam Driver mættur í Marvel-heiminn Fréttatía vikunnar: Björk, Usher og peningaþvætti Barbie-framhald í uppnámi vegna launakrafa Robbie Williams einhverfur Sjá meira