Erlent

Gasaskýrslan til Öryggisráðsins

Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna fær skýrsluna til meðferðar.
Nordicphotos/AFP
Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna fær skýrsluna til meðferðar. Nordicphotos/AFP
Mannréttindaráð Sameinuðu þjóðanna ákvað í gær að skýrsla um mannréttindabrot Ísraela og Palestínumanna í þriggja vikna stríði á Gasaströnd um síðustu áramót verði send Öryggisráði Sameinuðu þjóðanna til umfjöllunar. Bæði Ísraelar og Palestínumenn hafa gagnrýnt skýrsluna, en þar er því haldið fram að mannréttindabrot hafi verið framin á báða bóga.

Ísraelar hafa verið andvígir því að ráðið fjalli um skýrsluna, en Palestínumenn hafa verið tvístígandi. Talsmaður Palestínustjórnar, fagnaði því í gær að skýrslan fari fyrir Öryggisráðið.- gb




Fleiri fréttir

Sjá meira


×