Innlent

Ekið yfir sífellt fleiri hreindýr

Þessi mynd er tekin af veginum svo sjá má að þau eru oft ekki langt frá honum.
Þessi mynd er tekin af veginum svo sjá má að þau eru oft ekki langt frá honum. mynd/náttúrustofa austurlands sgþ
Aldrei hefur verið ekið yfir jafn mörg hreindýr hér á landi á einu ári og síðastliðið ár en þau voru alls 31 talsins. „Árið þar áður voru þau reyndar 30 en það skekkir myndina nokkuð að þá fóru 13 dýr í einu tilteknu slysi," segir Skarphéðinn G. Þórisson, sérfræðingur hjá Náttúrustofu Austurlands.

Flest þessara slysa verða á Kárahnjúkavegi en síðan hann var lagður árið 2002 hafa 36 hreindýr orðið fyrir bíl á þeim vegi. Skarphéðinn segir vonir standa til þess að Vegagerðin muni uppfæra á heimasíðu sinni upplýsingar um það hvort hreindýr séu á ferð nálægt vegum sem gerist nokkuð oft. Slíkar upplýsingar yrði þá hægt að nálgast með svipuðu móti og upplýsingar um færð.- jse




Fleiri fréttir

Sjá meira


×