Innlent

Maðurinn sem hafnaði utan vegar í Súgandafirði er í lífshættu

Karlmaður á sextugsaldri sem var fluttur alvarlega slasaður með flugi á sjúkrahús í Reykjavík eftir umferðarslys í Súgandafirði í morgun er samkvæmt upplýsingum lækna í lífshættu. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á Vestfjörðum sem fer með rannsókn málsins.

Á sjötta tímanum í morgun var tilkynnt um alvarlegt umferðarslys í botni Súgandafjarðar. Þar hafði bifreið hafnað utanvegar. Ökumaðurinn var einn á ferð.




Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×