Viljayfirlýsing um Tónlistarhúsið undirrituð 19. febrúar 2009 15:17
Katrín Jakobsdóttir, menntamálaráðherra og Hanna Birna Kristjánsdóttir borgarstjóri, undirrituðu í dag viljayfirlýsingu um framkvæmdir við Tónlistarhús og ráðstefnumiðstöð við Austurhöfnina í Reykjavík. Menntamálaráðuneyti og Reykjavíkurborg eru sammála um mikilvægi þess að framkvæmdum við húsið verði fram haldið. Fram kemur í tilkynningu að Austurhöfn-TR ehf., félag í eigu ríkis og borgar, mun taka verkefnið yfir. Miðast allar áætlanir við að ekki þurfi að koma til aukin framlög ríkis og borgar frá því sem ákveðið var á árinu 2004 þegar framkvæmdir og rekstur tónlistarhúss og ráðstefnumiðstöðvar voru boðin út. Reynt að ná fram hagræðingu Næstu mánuðir verða nýttir til að uppfæra verkáætlanir, endurmeta og kostnaðargreina hönnun og útfærslur tónlistar- og ráðstefnuhússins og leita hagkvæmari leiða en gert var ráð fyrir í upphafi. Verktíminn verður lengdur og er stefnt að töluverðum sparnaði í framkvæmdum við húsið og innréttingar. ,,Allir fyrirliggjandi samningar við verktaka og birgja verða rýndir sérstaklega með það að markmiði að ná fram enn frekari hagræðingu og lægra verði auk þess sem lánskjör verða skoðuð sérstaklega til að ná hagstæðustu lánskjörum sem möguleg eru. Stefnt er að því að innlendir starfskraftar komi að framkvæmdinni hvenær sem því verður við komið." Eignarhald endurskoðað taki efnahagslíf breytingum Þótt Austurhöfn-TR ehf. leysi til sín byggingu mannvirkisins er gert ráð fyrir að um tímabundna ráðstöfun sé að ræða. Austurhöfn-TR ehf. og dótturfélög þess munu vinna að heildaruppbyggingu alls svæðisins með það að markmiði að tryggja rekstrargrundvöll tónlistar- og ráðstefnuhússins og að öflug ferðaþjónusta og önnur atvinnustarfsemi geti náð fótfestu á þessu svæði. ,,Mikilvægt er að skipan í stjórn Austurhafnar-TR ehf. og dótturfélaga þess taki mið af þessum breyttu forsendum verkefnisins. Eignarhald og rekstraraðkoma ríkis og borgar verða endurskoðuð eftir því sem aðstæður í efnahagslífi taka breytingum."
Tengdar fréttir Borgarráð: Framkvæmdum við Tónlistarhúsið framhaldið Borgarráð samþykkti á fundi sínum í dag að framkvæmdum við Tónlistar- og ráðstefnuhúsið verði framhaldið. Bókunin var samþykkt samhljóða í ráðinu, að sögn Óskar Bergssonar formanns borgarráðs. Sameiginleg yfirlýsing ríkis og borgar um framkvæmdina verður kynnt síðar í dag. 19. febrúar 2009 12:52 Tónlistarhúsið tekið í notkun 2011 Tónlistarhúsið sem nú rís við höfnina verður líklega klárað á árinu 2011 ef áætlanir standast. Þetta kom fram í máli Katrínar Jakobsdóttur menntamálaráðherra á þingi en Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir forveri hennar í ráðuneytinu fagnaði því að lausn hafi fundist á málinu og að húsið verði klárað. Þær bentu báðar á að 600 störf hangi á spýtunni og muni um minna á tímum eins og nú eru uppi. 19. febrúar 2009 10:52 Mest lesið „Lygaáróðursherferð af hálfu pólitískra andstæðinga“ Innlent Allir Bretar fæddir eftir 2008 í lífstíðarbann frá tóbaki Erlent Fiskflutningabíll valt á Þorlákshafnarvegi Innlent Þriðji þingmaðurinn segir af sér á viku Erlent Vilja tæpar tvö hundruð billjónir til varnarmála Erlent Tveir flokkar í Garðabæ útiloka samstarf Innlent Hætta að styrkja Feneyjartvíæringinn vegna þátttöku Rússa Erlent Ingó veðurguð hefur fengið meira en nóg Innlent Greinir frá nauðgun eftir sýningu í Þjóðleikhúsinu Innlent Við þurfum að vera tilbúin að takast á við eldgosavá Innlent Fleiri fréttir Halda áfram umfangsmikilli leit að ferðamanni við Háafoss Kallar formann VR „ómerkilegan popúlista“ „Lygaáróðursherferð af hálfu pólitískra andstæðinga“ Við þurfum að vera tilbúin að takast á við eldgosavá Fiskflutningabíll valt á Þorlákshafnarvegi „Vitum ekkert hvað við eigum von á mörgum“ Tveir flokkar í Garðabæ útiloka samstarf Vaka kaus sér nýja forystu Segir ráðherra fá of lausan taum í nýjum sóttvarnalögum Dyflinarreglugerðin ekki afnumin þótt orðalag breytist Hættusvæði vegna hraunrennslis, almyrkvi og afmæli Sviptur réttindunum á staðnum Tilfærsla Sigríðar Bjarkar tímabundin Alma Möller fagnar nýjum sóttvarnalögum „Líður stundum eins og ég sé með pólitískan eltihrelli“ Grindavík og Hveragerði talin í mestri hættu vegna eldgosa Gæsluvarðhald framlengt yfir þremur í Dettifossmálinu Ekki hafi verið hægt að sýna fram á meinta nauðgun Forseti klökknaði þegar Þórdís Kolbrún kvaddi Megi búast við útskúfun úr samfélaginu eftir afplánun Orðinn máttvana í útlimum þegar hjálpin barst Sigríður Björk aftur færð til Gagnrýnin komi ekki á óvart en telja sig vera að gera rétt Kosningapallborð fréttastofu: Mun Sjálfstæðisflokkurinn halda velli í Garðabæ? Launamál í verkalýðshreyfingunni og þingmaður hætt kominn á kajak Ingibjörg þarf ekki að víkja í máli Margrétar Foksandur og rykagnir búa í þokunni Var bjargað úr sjónum eftir hálftíma: „Slysin gera ekki boð á undan sér“ Bílvelta á Hringbraut Umfangsmikil lögregluaðgerð vegna líkamsárásar Sjá meira
Borgarráð: Framkvæmdum við Tónlistarhúsið framhaldið Borgarráð samþykkti á fundi sínum í dag að framkvæmdum við Tónlistar- og ráðstefnuhúsið verði framhaldið. Bókunin var samþykkt samhljóða í ráðinu, að sögn Óskar Bergssonar formanns borgarráðs. Sameiginleg yfirlýsing ríkis og borgar um framkvæmdina verður kynnt síðar í dag. 19. febrúar 2009 12:52
Tónlistarhúsið tekið í notkun 2011 Tónlistarhúsið sem nú rís við höfnina verður líklega klárað á árinu 2011 ef áætlanir standast. Þetta kom fram í máli Katrínar Jakobsdóttur menntamálaráðherra á þingi en Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir forveri hennar í ráðuneytinu fagnaði því að lausn hafi fundist á málinu og að húsið verði klárað. Þær bentu báðar á að 600 störf hangi á spýtunni og muni um minna á tímum eins og nú eru uppi. 19. febrúar 2009 10:52