Júróvisjón hafið - bein útsending á Vísi 16. maí 2009 19:03
Opnunarhátið lokakeppninnar í Júróvisjón er hafin með pompi og prakt. Menn kasta eld og börn krúttast um sviðið. Manni mistókst að klæða sig úr frakkanum. Var tengdur í vír. Annar dansaraði forðaði honum frá skömm með því að fjarlægja jakkann. Kom þó ekki í veg að maðurinn gekk áfram eins og hann væri staddur í Dressman-auglýsingu. Maðurinn í frakkanum reyndist sigurframlag Rússana frá síðasta ári. Óþekkjanlegur án skautadansarans. Ballöður munu ríkja í fyrrihluta keppninnar. Fjörið hefst eftir hlé. Litháen ríður á vaðið með píanóballöðu. Söngvarinn spilar á píanó og vopnaður hatti og kynþokka. Minnir á Justin Timberlake. En kemst að sjálfsögðu ekki með tærnar þar sem það sjarmatröll hefur hælana. Maðurinn kveikti í hendinni á sér og fólk fagnaði gríðarlega á sama tíma. Nokkuð vel af sér staðið. Og þá er komið að pólitísku framlagi Ísraels sem tóku með sér hálfan araba á sviðið. Verður athyglisvert. „Það hlýtur að vera til önnur leið," syngja þær saman Ísraelinn og arabinn. Svo færa þær sig yfir á bongótrommurnar. Guð hjálpi þeim slái þær feilnótu. Frakkarnir eru næstir. Patrica hefur raust sína. Skemmtilegur eftirstríðstónn í laginu. Minnir á dökka knæpu þar sem byltingasinnar drekkja sorgum sínum. Á sama tíma blæs andspyrnuhreyfingin móð í brjóst sinna manna. Eða eitthvað í þá áttina. Þá kemur óperuframlag kvöldsins. Ljóst hárið, teknótakturinn og gervibrúnkan gefa þessu svo virðulegan blæ óperunnar. Og þá er komið að Króatíu. Einhver skrýtinn spænskur þemi í króatíska laginu. Slær aðdáendur heimstónlistar aðeins út af laginu til að byrja með. Lipur gítarleikurinn og júróvisjón hækkunin slær mann svo kaldan eins og veruleikinn sjálfur. Jú, það er ekki um að villast - hér er tilfinningaþrungið balkanpopp í gangi! Portúgal er næst á sviðið. Stundum kallað hippaframlagið. Mikið af blómlegum litum einkenna sviðið. Söngkonan er með rauða rós í hárinu, vonandi að það móðgi engan eins og hrátt þungarokkssóló eiga til að gera. Við vonum það besta. Nú er komið að íslenska framlaginu! Í byrjun sjáum við Hallgrímskirkju og svo rússnenska stelpu með blátt hár. Jóhanna er glæsileg eins og alltaf. Fallegar nærmyndir af hendi hennar sem detta svo úr fókus auka á dramatísk áhrifin. Jóhanna mun að sjálfögðu vinna þetta. Á eftir henni kom Grikkinn sem hnyklaði vöðvana eins og forfeður hans. Núna er keppnin að verða eitthvað skrýtin. Fólk í bláum búningum sem minna á....tja....eitthvað sem ætti reyndar vel heima í Júróvisjón. En það er ljóst að hér er engin keppni á fer miðað við framlag Jóhönnu. Því verður gert hlé á útsendingu vísis þar til úrslitin eru kunn.
Mest lesið Stórglæsilegt Sigvaldahús á sölu Lífið Nicole er fyrir norðan Lífið Lofar að minnast Panettiere ávallt af virðingu Lífið Hemma Gunn-stytta og heitur pottur í 192 milljóna króna raðhúsi Lífið Galvaskt gelludjamm hjá Guggu og guggunum Lífið Sunneva Einars áfram langtekjuhæsti áhrifavaldurinn Lífið Hvað veistu um... frjálsar íþróttir? Lífið Leikkonan var úrskurðuð látin á vettvangi Lífið Bestu hlutverk Hayden Panettiere Bíó og sjónvarp Barnalán hjá Brynju Dan Lífið Fleiri fréttir Sunneva Einars áfram langtekjuhæsti áhrifavaldurinn „Ógleymanlegt söngævintýri“ með Nicole Kidman Prjóna á klúbbnum án þess að prjóna yfir sig Hemma Gunn-stytta og heitur pottur í 192 milljóna króna raðhúsi Verjendur Davis segja ekkert að marka skjólstæðing sinn Lofar að minnast Panettiere ávallt af virðingu Stórglæsilegt Sigvaldahús á sölu Leikkonan var úrskurðuð látin á vettvangi Hvað veistu um... frjálsar íþróttir? Galvaskt gelludjamm hjá Guggu og guggunum Nicole er fyrir norðan Egill Heiðar og Kittý selja Garðabæjarslotið Helstu samsæriskenningarnar um Evrópusambandið „Ein miðaldra kona að tala um að hún hefði viljað mæta“ Barnalán hjá Brynju Dan Herra og frú Crivello hamingjusöm hjón Svana á tímamótum og selur slotið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Leikkonan Hayden Panettiere er látin Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Þórdís Elva er gengin út Efna til söfnunar í minningu Hennings Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Krakkatía vikunnar: Tinni, flekar og stór augu Þórdís Kolbrún fékk hlýjar móttökur Adam Driver mættur í Marvel-heiminn Fréttatía vikunnar: Björk, Usher og peningaþvætti Sjá meira