Segja menn græða á sölu ólöglegra tækja 16. október 2009 03:30 Amerísk heimilistæki af varnarsvæðinu þykja vönduð vara en eru ólögleg á Íslandi vegna annarrar rafmagnsspennu en hér tíðkast. Fréttablaðið/GVA
Rafiðnaðarsamband Íslands segir að heimilistæki séu nú seld út af gamla varnarsvæðinu á Keflavíkurflugvelli þrátt fyrir að notkun þeirra sé ólögleg hér á landi. „Nýverið höfðu rafiðnaðarmenn samband við skrifstofur RSÍ og bentu á að forsvarsmenn þeirra fyrirtækja sem sjá um endurnýjun íbúða og rafbúnaðar á Vellinum séu að selja og í einhverjum tilfellum að gefa þau tæki sem tekin eru niður á Vellinum. Það er að segja að þessi tæki eru enn í notkun í landinu og forsvarsmenn þessara fyrirtækja séu að taka sér arð af því að koma þeim í umferð,“ segir í frétt á heimasíðu Rafiðnaðarsambandsins. Guðmund Gunnarsson, formaður Rafiðnaðarsambandsins, segir að tæpur mánuður sé síðan málið hafi verið kært til rafmagnseftirlitsins. Á vef sambandsins segir nánar um málið að bandaríski herinn hafi skilið eftir sig á annað þúsund þvottavélar og annað eins af þurrkurum, ísskápum og eldavélum. Öll tækin nota 110 volta spennu en ekki 220 eins og er í íslenska kerfinu. Eftir eitt ár rennur út þriggja ára frestur sem veittur var til að breyta rafmagnskerfinu á vellinum þannig að það verði 220 volt. Eftir þann tíma á að farga öllum þessum tækjum eða senda þau úr landi. „Það ætti öllum að vera ljóst að þessi tæki eru nákvæmlega jafn hættuleg hvort sem þau eru í íbúðum og fyrirtækjum á vallarsvæðinu eða annars staðar á landinu,“ segir í frétt Rafiðnaðarsambandsins sem vill að rafmagnseftirlitið svari eftirfarandi spurningum: „Það er búið að gera upp vel á annað þúsund íbúða. Hvar eru tækin sem tekin voru úr þessum íbúðum? Var þeim fargað? Voru þau seld úr landi? Voru þau sett á íslenskan markað?“ Jóhann Ólafsson, sviðsstjóri rafmagnöryggissviðs Brunamálastofnunar, segir sjálfsagt að skoða þessi mál ofan í kjölinn og árétta við hlutaðeigandi hvaða reglur gildi. „Það er verið að gefa í skyn að þarna séu einhverjir að selja tæki en þeir eru ekki nafngreindir. Þetta er svolítið stór hópur sem þetta getur átt við, en við erum að kanna málið,“ segir Jóhann. Tæki sem eru gerð fyrir ameríska rafmagnskerfið virka eðlilega hér með spennibreyti. „Þessi tæki eru alls ekki lífshættuleg en þau eru ekki lögleg,“ segir Jóhann. Þróunarfélagið Kadeco annast eignir á gamla varnarsvæðinu. Ekki fengust svör þaðan í gær um þetta mál. gar@frettabladid.is
Mest lesið Stefnir í fámennari Þjóðhátíð: „Við tökum þetta á langhlaupinu“ Innlent Gefa upp dánarorsökina vegna „ónákvæmra og rangra frétta“ af andlátinu Erlent Erfiðara og erfiðara að lifa mannsæmandi lífi á Íslandi Innlent Mál Péturs slökkviliðsstjóra komið á borð lögreglu Innlent Fór af hjólinu skömmu áður en það brann til kaldra kola á þjóðveginum Innlent Testósterónmagn kannað hjá öllum hermönnum 30 ára og eldri Erlent Jafnvel brotist inn þegar fólk er heima Innlent Dró strætóbílstjóra úr sætinu og potaði í augu hans Innlent Hefur áhyggjur af smithættu í fargufum Innlent Nánast farin að reikna með hitabylgjum fyrir austan Innlent Fleiri fréttir Einfaldur seðill flýtir ekki lokatölum Þúsundir Úkraínumanna mótmæla hrókeringum Selenskís Undirbúningur fyrir þjóðaratkvæði í fullum gangi og hækkun hámarkshraða rædd Klóraði lögreglumann og beit annan Ólafur ráðinn sveitarstjóri Skagastrandar Geri foreldra og börn að lögbrjótum Enginn framhaldsskólakennari meti stöðu nýnema mjög góða Mál Péturs slökkviliðsstjóra komið á borð lögreglu Almar nýr formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga Dró strætóbílstjóra úr sætinu og potaði í augu hans Kalla inn Voga ídýfu vegna vanmerkts ofnæmisvalds MAST hafi farið gegn áliti fagráðs um blóðmerahald Stefnir í fámennari Þjóðhátíð: „Við tökum þetta á langhlaupinu“ Lengja opnunartíma í Salalaug Ár liðið frá því síðast gaus á Reykjanesi Jafnvel brotist inn þegar fólk er heima Erfiðara og erfiðara að lifa mannsæmandi lífi á Íslandi „Þetta snýst ekki hreinlega um bann heldur ákveðna vernd“ Fór af hjólinu skömmu áður en það brann til kaldra kola á þjóðveginum Nánast farin að reikna með hitabylgjum fyrir austan Ekki öll jafn spennt fyrir boðuðu samfélagsmiðlabanni Hefur áhyggjur af smithættu í fargufum „Þetta setti allt úr skorðum fyrir okkur“ Lögreglan rannsakar enn eitt innbrotið í borginni Varað við hvössum vindstrengjum við fjöll og á heiðum Adolf Ingi fékk svar frá Stefáni: „Aumt að skýla sér á bak við Fjölmiðlanefnd“ Kvöldfréttir Sýnar í heild sinni Tengivagn valt á Vesturlandsvegi Vilja reisa 140 stúdentaíbúðir á Kársnesi Leigubílstjóri stunginn af farþega Sjá meira